Innlent

Grétu af gleði þegar þau fengu landvistarleyfið

Nadine Guðrún Yaghi og Kjartan Kjartansson skrifa
Khedr-fjölskyldan sem nú er komin með landvistarleyfi á Íslandi.
Khedr-fjölskyldan sem nú er komin með landvistarleyfi á Íslandi. Vísir/Egill

Khedr-fjölskyldan segist varla trúa því ennþá að hún dvelji nú löglega á Íslandi. Þau grétu öll af gleði þegar þau fengu fréttirnar um að þeim yrði veitt landvistarleyfi í gærkvöldi eftir að til stóð að vísa þeim úr landi fyrir viku.

Fjölskyldunni var tilkynnt um að hún fengi landvistarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða í gærkvöldi. Kærunefnd útlendingamála byggði endurupptöku máls fjölskyldunnar á nýjum upplýsingum um að stúlkunni væri möguleg hætta búin vegna kynfæralimlestinga í heimalandinu. Um það hafi ekki verið fjallað um áður. Við endurupptöku málsins hafi málsmeðferðartíminn dregist umfram viðmið og fjölskyldunni því veitt dvalarleyfi.

Að neðan má heyra viðtal við fjölskylduna.

„Það var gaman í gær þegar Magnús [Davíð Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar] hringdi í mömmu mína. Hún var að tala við hann í eldhúsinu og fór svo að hlaupa og sagði við verðum hér á Íslandi og fáum kennitölu. Ég fór mikið að gráta og við öll. Við fórum svo líka að horfa á sjónvarpið og sáum Magnús og hann var að tala í sjónvarpinu og það var gaman,“ segir Rewida Ibrahim Khedr sem er tólf ára gömul.

„Við erum mjög ánægð með þetta. Við skiljum ekki, við trúum ekki að við séum núna íbúar hér. Við höfum verið hrædd til þessa en núna getum við andað léttar og lifað vel því verðum hér löglega,“ segir Doaa Mohamed Mohamed Eldeib, móðirin í fjölskyldunni.

Fjölskyldan fór í felur þegar til stóð að senda hana úr landi en vill ekki gefa upp hvar hún hefur verið síðustu vikuna.

„Við vorum í felum og fórum ekki neitt út. Við vorum hrædd við að fara út og við vissum að lögreglan væri að leita að okkur,“ segir Eldeib.

Þannig að það var fólk að hjálpa ykkur?

„Já, það var fólk sem hjálpaði okkur,“ segir hún.

Elskar Ísland og fólkið sem hjálpaði þeim

Þau segja að næstu dagar fari í að ná áttum. Þá ætli þau að finna sér íbúð í Reykjavík. Krakkarnir séu spenntir að fara aftur í skólann.

„Við erum að fara á mánudaginn,“ segir Rewida.  „Það er langt síðan við hittum þau,“ segir Abdalla Ibrahim, níu ára gamall bróðir hennar, þegar systkinin eru spurð hvort þau hlakki til að hitta skólafélagana.

Doa sem er menntaður hjúkrunarfræðingur ætlar að sækja um starf á spítala og Ibrahim, sem er tæknifræðingur ætlar að leita sér að vinnu líka.

Þau ítreka þakklæti sitt til allra sem hafa sýnt þeim stuðning.

„Pabbi minn segir að hann elskar Ísland og elskar að við verðum á Íslandi, eigum heimili á Íslandi og hann elskar fólkið sem hefur verið að hjálpa okkur,“ segir Abdalla Ibrahim fyrir hönd föður síns.


Tengdar fréttir

Stjórn­mála­menn með yfir­lýsingar um af­skipta­leysi hafi síst hjálpað

Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður egypsku fjölskyldunnar sem nú er komin með dvalarleyfi segir að mat á hagsmunum barnanna hafi verið í mýflugumynd. Það sé hans von að málið verði til þess að Útlendingastofnun breyti verklagi sínu. Egypsku krakkarnir hlakka til að komast í skólann eftir að hafa verið í felum á Íslandi.

Katrín og Svandís glaðar fyrir hönd egypsku fjölskyldunnar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segjast báðar hafa glaðst fyrir hönd Khedr-fjölskyldunnar eftir að henni var veitt hæli af mannúðarástæðum hér á landi í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×