Innlent

Segir stöðuna „afleita“ á Landspítalanum

Samúel Karl Ólason skrifar
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Vísir/Egill

35 starfsmenn Landspítalans eru í einangrun eftir að hafa smitast af Covid-19 og 177 í sóttkví. Dagdeild skurðlækningar og göngudeild skurðlækninga í Fossvogi hefur verið lokað og fresta verður vissum aðgerðum um sinn. Bráðaaðgerðum er sinn áfram en staðan er „afleit“ samkvæmt Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans.

Örkönnun meðal starfsmanna sýnir að álag á starfsmenn hafi aukist og vanlíðan þeirra aukist. Um tólf prósent starfsmanna telja sig þurfa á hjálp að halda.

Í pistli á vefsíðu spítalans óskar Páll þeim sem hafa smitast af kórónuveirunni skjótan bata og minnir á mikilvægi smitvarna í starfseminni.

„Við höfum auðvitað staðið undir þeim og rúmlega það. Hvað smitvarnir varðar er ljóst að árangur okkar hefur verið góður, eins og mótefnamælingar meðal starfsfólks í sumar sýndu. Aðeins 0,25% reyndust hafa mótefni fyrir Covid-19 þó að þeir sem til rannsóknarinnar völdust hafi einmitt verið í hópi þeirra sem önnuðust Covid sjúklinga. Það er eftirtektarverður árangur,“ skrifar Páll.

Hann segir öll gögn benda til að rétt notkun hlífðarbúnaðar sé örugg vörn gegn veirunni og almenn smitgátt sömuleiðis.

„Það er því afskaplega áríðandi núna að við öll viðhöfum ítrustu smitvarnir við vinnuna okkar, í samskiptum við vinnufélaga og eins og kostur er í einkalífinu og þess bið ég ykkur lengstra orða.“

Röskun á hefðbundnum störfum

Í pistli sínum fjallar Páll einnig um örkönnun sem gerð var á áhrifum faraldursins á störf heilbrigðisstarfsmanna. Hún hafi sýnt að 80 prósent starfsmanna telji faraldurinn hafa raskað hefðbundnum störfum þeirra. Flestir séu sammála um að breytingarnar séu bæði jákvæðar og neikvæðar.

„Það sem fólk telur jákvætt er að tækniþekkingu hefur fleygt fram, nýjar rafrænar lausnir hafa verið teknar upp, ánægja ríkir með skipulag heimavinnu og fjarfundi, meiri vitund er um sýkingavarnir, verkferlar hafa verið einfaldaðir og samvinna aukist. Það sem talið er neikvætt er að þjónusta hefur verið skert á sumum stöðum, álag er mikið, erfitt er að vera í búningi og með grímu, einangrun sjúklinga hefur aukist og umönnun því umfangsmeiri auk þess sem samskipti við samstarfsfólk eru ekki eins náin,“ skrifar Páll.

Þó hafi einnig komið fram að um þriðjungur starfsfólks segir líðan þeirra verri en almennt í byrjun hausts. Tólf prósent telji sig þurfa á aðstoð að halda vegna þessa. Páll hvetur starfsfólk til að nýta úrræði sem í boði séu og takast á við þessa líðan.


Tengdar fréttir

Sóttvarnalög verði endurskoðuð

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að semja drög að frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum.

Smituðum fjölgar á Landspítalanum

Fleiri starfsmenn Landspítala greindust með kórónuveiruna í gær og umtalsverður fjöldi starfsmanna því í sóttkví.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×