Íslenski boltinn

Matthías um skiptin til FH: „Fékk til­boð um að hjálpa mínu gamla liði“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Matthías Vilhjálmsson klárar leiktíðina með Vålerenga og kemur svo í Krikann.
Matthías Vilhjálmsson klárar leiktíðina með Vålerenga og kemur svo í Krikann. mynd/vif-fotball.no

Matthías Vilhjálmsson mun í janúar ganga í raðir FH eftir átta ár í atvinnumennsku. Þetta var staðfest í gær.

Frá því í upphafi árs 2019 hefur Matthías verið á mála hjá Vålerenga sem hann nú yfirgefur eftir yfirstandandi leiktíð.

„Ég hef verið lengi í Noregi. Ég átti frábæran tíma hjá Start, upplifði mikinn árangur í Rosenborg og síðustu tvö ár í Vålerenga hafa verið mjög fín,“ sagði Matthías í samtali við heimasíðu Vålerenga.

Ísfirðingurinn segir að þegar FH hafi komið á borðið og sú ástæða að fjölskyldan var byrjuð að huga að flutningum heim til Íslands, hafi þetta verið afgreitt nokkuð snaggaralega.

„Ég hef verið með í að byggja upp félagið á nýjan leik og það er mikið spennandi sem er í gangi hérna. Þegar ég fékk tilboðið um að hjálpa mínu gamla liði, sem ég var fyrirliði hjá, og á íslenska fjölskyldu sem vill fara heim, þá var afgreitt.“

Tímabilið í Noregi er enn í gangi og Matthías vill ljúka ferlinum í Noregi á góðan máta.

„Ég vil gera allt til þess að loka atvinnumannaferlinum á góðan hátt. Ég mun gefa allt fyrir Vålerenga og þetta lítur vel út. Við eigum marga möguleika. Ég hef mikla trú á Vålerenga á næstunni,“ sagði Matthías.


Tengdar fréttir

Matthías snýr aftur til FH

Knattspyrnumaðurinn Matthías Vilhjálmsson snýr aftur til FH um áramótin og hefur skrifað undir samning til þriggja ára við félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×