Íslenski boltinn

Jóhannes um at­vikið um­deilda: Hún hefur séð eitt­hvað allt annað en við

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhannes Karl Sigursteinsson er þjálfari KR sem berst í botnabaráttu Pepsi Max deildar kvenna.
Jóhannes Karl Sigursteinsson er þjálfari KR sem berst í botnabaráttu Pepsi Max deildar kvenna. VÍSIR/VILHELM

Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR, var langt frá því að vera sáttur með frammistöðu síns liðs í fyrri hálfleik gegn Stjörnunni. Garðbæingar voru 0-2 undir að honum loknum og það urðu lokatölur leiksins.

„Fyrri hálfleikurinn var afspyrnu lélegur. Stjarnan labbaði yfir okkur í fyrri hálfleik, voru mikið betra liðið og við vorum stálheppnar að vera bara 0-2 undir. Við mættum í seinni hálfleikinn en það er ekki nóg. Þú verður að vera klár þegar leikurinn byrjar,“ sagði Jóhannes eftir leik.

KR-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn ágætlega og gerðu sig líklega í nokkur skipti. En svo dró af þeim.

„Mér reyndum allan tímann og fengum hornspyrnur og svona. En Stjarnan var þétt og við hreinlega höfðum ekki þann sóknarþunga sem til þurfti til að skora. Við fengum gott færi í upphafi seinni hálfleiks en að öðru leyti sköpuðum við okkur ekki nóg til að skora,“ sagði Jóhannes.

Snemma í seinni hálfleik átti KR að fá vítaspyrnu þegar Arna Dís Arnþórsdóttir braut á Angelu Beard innan teigs. Bríet Bragadóttir dæmdi hins vegar aukaspyrnu.

„Ég var of langt frá. En frá bekknum séð virkaði þetta klárt víti. Hún spjaldaði ekki einu sinni leikmanninn þannig ég veit ekki alveg hvernig Bríet sá þetta en hún hefur séð eitthvað allt annað en við,“ sagði Jóhannes.

KR á sex leiki eftir í Pepsi Max-deildinni og dagskrá liðsins er gríðarlega þétt. Ekki bætir úr skák að lykilmenn hefur vantað í lið KR eins og í dag.

„Framhaldið er strembið. Við þurfum að fá leikmenn til baka. Þórdís var í banni í dag og Katrín Ásbjörnsdóttir vinnur á Landsspítalanum og var send í sóttkví í morgun og var því ekki með,“ sagði Jóhannes.

„Við eigum sex leiki eftir til 8. október og ég vonast til að við fáum leikmenn inn til að geta dreift álaginu. Við erum í þannig stöðu að við verðum að berjast fyrir þremur stigum í hverjum einasta leik. Það er bara næsti leikur og áfram gakk.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×