Viðskipti innlent

Sýn og Nova máttu reka saman dreifikerfi

Kjartan Kjartansson skrifar
Síminn kærði ákvarðanir tveggja stofnana um að veita Nova og Sýn heimild sem auðveldaði þeim að vinna saman að dreifikerfi farsímaþjónustu. Fyrirtækið þarf að greiða keppinautum sínum eina milljóna króna hvorum í málskostnað fyrir Landsrétti.
Síminn kærði ákvarðanir tveggja stofnana um að veita Nova og Sýn heimild sem auðveldaði þeim að vinna saman að dreifikerfi farsímaþjónustu. Fyrirtækið þarf að greiða keppinautum sínum eina milljóna króna hvorum í málskostnað fyrir Landsrétti. Vísir/Hanna

Landsréttur hafnaði kröfu Símans um að ógilda skyldi ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins og Póst- og fjarskiptastofnunar um að leyfa Sýn og Nova að samnýta tíðniheimildir vegna sameiginlegs reksturs á dreifikerfi fyrir farsímaþjónustu. Síminn telur dóminn þýða aukna samvinnu fjarskiptafélaga og samnýting innviða í framtíðinni.

Póst- og fjarskiptastofnun veitti Nova og Vodafone, nú Sýn, heimild til að samnýta alla tíðniheimildir sem fyrirtækin höfðu fengið úthlutað. Samkeppniseftirlitið veitti fyrirtækjunum undanþágu frá samkeppnislögum til þess að stofna nýtt félag, Sendafélagið ehf., um rekstur dreifikerfis fyrir farsímaþjónustu.

Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti ákvörðunina. Taldi Síminn að í samvinnu samkeppnisaðila sinna fælist framsal tíðniheimilda sem væri ólöglegt.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu Símans um ógildingu ákvarðananna í apríl í fyrra og staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu í gær.

Í yfirlýsingu frá Símanum sagði að úrskurðurinn veiti leiðsögn um heimild keppinauta til þess að vinna saman að uppbyggingu fjarskiptainnviða.

„Aukin samvinna fjarskiptafélaga og samnýting innviða verður þekkt stef í náinni framtíð, sérstaklega með tilkomu 5G fjarskiptakerfisins og framtíðar uppbyggingu slíks kerfis á Íslandi. Síminn hefur ásamt Sýn og Nova tilkynnt áhuga sinn á að hefja samtal um slíkt innviðasamstarf þó engin niðurstaða liggi fyrir í þeim efnum,“ sagði í yfirlýsingunni í gær.

Vísir er í eigu Sýnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×