Rafíþróttir

Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, KR mætir XY

Bjarni Bjarnason skrifar
Vodafonedeildin sett

Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Verður níunda umferð deildarinnar leikinn í kvöld og er þetta önnur viðureign liðana. Munurinn er þó sá að skipst hefur verið á heimavallar hlutverkinu. En heimavallarliðið fær að velja kortið.

Í fyrsta leik kvöldsins taka fallbyssurnar í Hafinu á móti Fylki á heimavelli. Fyrri viðureign liðanna var spiluð í kortinu Vertigo þar sem HaFið vann með naumindum eftir tvöfalda framlengingu í hörkuspennandi leik. Lið Fylkis hefur sýnt okkur í hverjum leiknum á fætur öðrum hversu megnugir þeir eru er þeir finna taktinn því hörku leikur í vændum.

Í milli leik kvöldsins mætast KR - XY. Fyrri viðureign liðanna fór fram á heimavelli XY í kortinu Mirage þar sem KR sigraði á sannfærandi máta. En KR hefur lagt hvert liðið á fætur öðru og aðeins misstigið sig einu sinn í deildinni hingað til. En lið XY hefur vaxið með hverjum leiknum og nýtti leikmannagluggann til að næla sér í sterka viðbót með fráfarandi leikmanni GOAT honum DOM (Daníel Örn Melstað). Spennandi verður að sjá hvernig endurskipulögðu liði XY farnast á móti kempunum í KR.

Lokaleikur kvöldsins er GOAT á móti Dusty. Lið GOAT mæta ferskir til leiks með Cris (Kristján Daði Pálsson) sem mun fylla í skarð DOM. Dusty sigruðu fyrri viðureign liðanna í kortinu Mirage á heimavelli GOAT og tróna þeir taplausir á toppi deildarinnar.

Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi.

Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan.

19:30 HaFiÐ - Fylkir

20:30 KR - XY

21:30 GOAT - Dusty

Útsending er hefst kl 19:15 og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×