Körfubolti

Fleiri Keflvíkingar í sóttkví og leik frestað

Sindri Sverrisson skrifar
Það verður bið á því að lærisveinar Hjalta Þórs Vilhjálmssonar geti hafið tímabilið þar sem þrír þeirra eru í sóttkví.
Það verður bið á því að lærisveinar Hjalta Þórs Vilhjálmssonar geti hafið tímabilið þar sem þrír þeirra eru í sóttkví. VÍSIR/DANÍEL

Þór Akureyri og Keflavík munu ekki mætast á föstudagskvöld í 1. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta, eins og fyrirhugað var.

Mótanefnd KKÍ hefur frestað leiknum þar sem að þrír leikmanna Keflavíkur verða í sóttkví fram yfir leikdag. Ekki er búið að ákveða nýjan leiktíma.

Samkvæmt sérstökum reglum KKÍ vegna kórónuveirufaraldursins er leik aðeins frestað ef að þrír af þeim sjö leikmönnum sem mest hafa spilað fyrir lið á leiktíðinni eru í sóttkví eða einangrun. Úr því að tímabilið er ekki hafið telst nóg að hvaða þrír leikmenn sem er, í leikmannahópnum, geti ekki spilað vegna faraldursins.

Í gær var leik kvennaliðs Keflavíkur við Snæfell sem leika átti á laugardag frestað vegna sóttkvíar Keflvíkinga, sem og leik  kvennaliða KR og Vals sem fara átti fram í kvöld, vegna sóttkvíar KR-inga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×