Leikjavísir

Bein útsending: Steindi snýr aftur með Rauðvín og klaka

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alltaf skemmtilegar útsendingar hjá Steinda. 
Alltaf skemmtilegar útsendingar hjá Steinda. 

Þættirnir Rauðvín og klakar snúa aftur á Stöð 2 Esport í kvöld en þar spilar Steinþór Hróar Steinþórsson tölvuleiki og drekkur eina rauðvínsflösku með.

Áhorfendur geta fylgst með í gegnum Twitch og einnig á Stöð 2 Esport og í kvöld á Vísi.

Streymi Steinda og félaga á Twitch er stærsta íslenska leikjarstreymið landsins og lofa þeir félagar flugeldasýningu öll miðvikudagskvöld kl 21 í haust. Steindi hvetur fólk til þess að ekki bara fylgjast með heldur einnig að taka þátt í umræðunni í spjallinu við útsendinguna en þeir félagar spila í rauntíma. 

„Ég svara þeim spurningum sem fólk spyr. Umræðan verður mjög skemmtileg þegar margir hrúgast þarna inn. Ég lít á þetta eins og við séum öll að hanga saman, bara á sitthvorum staðnum. Áhorfendur hjálpa okkur einnig að sigra leiki og hvetja okkur áfram. Svo þegar við erum að spila illa þá erum við látnir heyra það, sem á það til að gerast þegar rauðvínsflaskan er farin að léttast.”

Útsending Steinda hefst klukkan níu og getur staðið yfir í nokkrar klukkustundir.

Með Steinda spila þeir Óli Jó, Digital Cuz og MVPete en þeir félagar hafa spilað lengi saman. Eins og áður segir hefst bein útsending klukkan 21 í kvöld. 

„Óli er auðvitað afi íslenskra nörda og Game Tíví stjarna. Hann hefur verið í þessum geira síðan þeir yngstu voru að leira. Það er eiginlega nokkuð merkilegt að hann sé á lífi þar sem hann er lang elsti maður landsins. Digital Cuz er svona maður sem býr til jello shots á virkum dögum og hlustar á Creed eins og menn frá Sauðárkróki eiga það til að gera. MVPete er starfsmaður hjá Freyju og er nokkuð eðlilegur maður. Það er mjög þakklátt að hafa einn eðlilegan mann í hópnum sem getur rifið í handbremsuna þegar streymin fara út í of mikla vitleysu,“ segir Steindi.

„Við sötrum svo rauðvín á meðan við spilum og eigum það til að verða verri og verri með hverjum leik. Enda snýst þetta um að skemmta fólki og gleðja þá sem eru komnir með illt í þumlana vegna spilunar og vilja frekar horfa en spila. Eða þá sem eru búnir með allt sitt sjónvarpsefni og koma krökkunum niður.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×