Innlent

Leyfa einum aðstandanda á dag að hitta Covid-sýktan ástvin á Eir

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Starfsfólk Eirar ætlar að fara af stað með heimsóknarverkefni til að rjúfa einangrun þeirra fjögurra íbúa sem hafa smitast af kórónuveirunni. Fyllstu varúðar verður gætt og verða aðstandendur í hlífðarfatnaði frá toppi til táar. Ljósmyndin tengist fréttinni ekki beint.
Starfsfólk Eirar ætlar að fara af stað með heimsóknarverkefni til að rjúfa einangrun þeirra fjögurra íbúa sem hafa smitast af kórónuveirunni. Fyllstu varúðar verður gætt og verða aðstandendur í hlífðarfatnaði frá toppi til táar. Ljósmyndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty

Stjórnendur hjúkrunarheimilisins Eirar hafa ákveðið að leyfa einum aðstandanda á dag að hitta Covid-sýktan ástvin sem dvelur á Covid-deild hjúkrunarheimilisins. Fyllstu varúðar verður gætt og verða aðstandendur í hlífðarfatnaði frá toppi til táar.

Fréttastofa greindi frá því í dag að fjórði íbúinn hafi greinst með kórónuveiruna í gær. Tveir starfsmenn hafa einnig smitast af veirunni.

Fimm starfsmenn eru í sóttkví vegna tveggja fyrstu tilfellanna á Eir en þrír aðrir íbúar eru einnig í sóttkví.

Þórdís Hulda Tómasdóttir, verkefnastjóri hjúkrunar- og gæðamála segir að sem betur fer séu þeir íbúar sem hafi greinst með veiruna annað hvort einkennalitlir eða einkennalausir.

„En auðvitað er ákveðin hræðsla, ótti og einmanaleiki. Þetta er rosalega erfitt fyrir þau en þau standa sig öll ótrúlega vel. Þau eru dugleg og það er barátta í þeim.“

Þórdís Hulda segir veikindin einnig fá mikið á aðstandendur íbúanna. Í viðleitni til að rjúfa einangrun þeirra íbúa sem eru veikir ætlar starfsfólkið að fara af stað með heimsóknarverkefni sem hefst strax í dag.

„Við erum svo heppin að á þessari Covid-deild er innangengt á tveimur stöðum í húsinu og við ætlum að bjóða einum aðstandanda hinna Covid sýktu upp á heimsókn. Við aðstoðum þau við að fara í fullan hlífðarbúnað svo þau geti hitt ástvin sinn. Heimsóknin verður til hliðar við deildina, þannig að gesturinn kemur hvorki inn á það sem við köllum sýkt svæði né ósýkt svæði heldur inn á hlutlaust heimsóknarsvæði. Þetta skiptir bara svo miklu máli upp á að viðhalda baráttuviljanum og að þau upplifi ekki enn meiri einangrun en þörf er á. Við ætlum allavega að sjá hvernig þetta gengur. Þetta höfum við rætt við yfirlækni smitsjúkdómadeildar og fengum grænt ljós á að þetta sé eitthvað sem við gætum alveg prófað að gera.“

Þórdís segir að afar brýnt sé að fleygja smitskömm. Hér eigi hún ekkert erindi. Starfsfólkið hafi sýnt af sér ósérhlífni, verið með eindæmum sveigjanlegt og duglegt við afar krefjandi aðstæður.

„Þessi veira er svo lævís og nú er hún komin í alla kima samfélagsins; skólana, spítalana og vinnustaði. Ef fólk er einkennalítið eða laust þá er svo erfitt að eiga við þetta. Þrátt fyrir að við höfum verið með miklar takmarkanir á heimsóknum og fólkið okkar staðið sig ótrúlega vel og verið í sjálfskipaðri sóttkví utan vinnu er staðreynd málsins engu að síður sú að við þurfum öll að lifa með þessari veiru. Og þar af leiðandi gerir maður bara sitt besta og meira getur maður ekki gert.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×