Innlent

Öllum starfsmönnum Samtakanna '78 sagt upp störfum

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Húsnæði samtakanna á Suðurgötu í Reykjavík.
Húsnæði samtakanna á Suðurgötu í Reykjavík. Vísir/Egill

Öllum fjórum starfsmönnum Samtakanna '78 hefur verið sagt upp störfum. Aðgerðirnar ná einnig til 10 verktaka sem starfa fyrir samtökin. Samningar við ríkið og Reykjavíkurborg renna út um áramótin sem þýðir að ekki er grundvöllur fyrir áframhaldandi rekstri samtakanna ef ekki nást nýir samningar fyrir þann tíma að sögn framkvæmdastjóra samtakanna.

„Núna gerist það í fyrsta skipti, sem við erum með raunverulegt starfsmannahald, að samningar okkar bæði við ríkið og stærsta sveitarfélagið, Reykjavíkurborg, rennur út á sama tíma og þegar ég settist niður með stjórninni minni fyrir nokkru þá sáum við í rauninni að án þessara tvegga samninga er ekki rekstrargrundvöllur fyrir okkar starfsemi í janúar. Þannig að það sem að við þurfum að fá núna eru bara skýrari svör frá ríki og Reykjavíkurborg, hvað þau ætla að gera, hvernig þau ætla að koma til móts við okkur,” segir Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78 í samtali við Vísi. 

„Þetta er algjört örþrifaráð.” 

Að óbreyttu taka uppsagnirnar gildi um áramótinn en Daníel kveðst binda vonir við að samningar náist við ríki og borg í tæka tíð svo að hægt verði að draga uppsagnirnar til baka og tryggja áframhaldandi starfsemi samtakanna.

Nánar var rætt við Daníel í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Viðtalið má sjá hér að neðan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×