Rafíþróttir

Í beinni: Tveir hörkuleikir í úrvalsdeildinni í eFótbolta

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Róbert Daði [Fylki] er meðal keppanda í kvöld.
Róbert Daði [Fylki] er meðal keppanda í kvöld. Skjáskot

Knattspyrnusamband Ísland hefur stofnað úrvalsdeildina í efótbolta í samstarfi við Rafíþróttasamtök Íslands. Leikir kvöldsins verða sýndir beint á Twitch-rás KSÍ. Finna má streymi á leiki kvöldsins neðst í fréttinni.

Deildina skipa átta bestu lið landsins og var byggt á árangri leikmanna á Íslandsmótinu í vor, þar sem fimmtíu lið skráðu sig til leiks.

Keppendur mæta með FIFA Ultimate Team-lið sín og verðuur spilað í beinni útsendingu á hverju miðvikudagskvöldi fram í desember. Útsending kvöldsins hefst klukkan 19:15 og stendur yfir til 21:00.

Leikmenn deildarinnar spila allir fyrir íþróttalið og er eitt af markmiðum deildarinnar að kynna rafíþróttir fyrir almenning og vera með deild sem iðkendur vilja stefna á að spila í.

Spilaðar verða fjórtán umferðir á þrettán vikum í úrvalsdeildinni. Þegar FIFA21 kemur út skiptir úrvalsdeildin beint í nýjan leik, en fyrstu umferðirnar verða í FIFA20.

Leikirnir tveir í kvöld eru eftirtaldir:

Róbert Daði [Fylkir] og Tindur Örvar [Fylkir] mætast klukkan 19.25. 

Jóhann Ólafur [LFG] mætir Bjarka Má [Víking] klukkan 20.15

Hér má sjá beina útsendingu leikja kvöldsins.

Hér má finna stöðuna í deildinni sem og leikjadagskrá mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×