Fótbolti

Sverrir Ingi úr leik | Mikael kominn í riðla­keppni Meistara­deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sverrir Ingi í leik kvöldsins. PAOK komst ekki í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Sverrir Ingi í leik kvöldsins. PAOK komst ekki í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Andrei Shramko/Getty Images

Tveir íslenskir landsliðsmenn voru í eldlínunni með liðum sínum í kvöld er þau reyndu að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Mikael Anderson lék í örskamma stund í 4-1 sigri Midtjylland á meðan Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn í miðri vörn PAOK sem er úr leik.

Vængmaðurinn Mikael Neville Anderson hóf leik Midtjylland og Slavia Prag á varamannabekknum en leikið var á heimavelli fyrrnefnda liðsins í Danmörku. Eftir markalaust jafntefli í Tékklandi voru dönsku meistararnir í góðum málum fyrir leik.

Þeir fengu þó blauta tuska í andlitið þegar gestirnir komust yfir strax á 3. mínútu. Lengi vel leit út fyrir að gestirnir færu áfram en það var ekki fyrr en á 65. mínútu sem Sory Kaba jafnaði metin fyrir Midtjylland. Kaba brenndi síðan af vítaspyrnu á 81. mínútu og virtist sem Prag gæti farið áfram á útivallarmarkareglunni.

Aðeins þremur mínútum síðar fengu heimamenn aftur vítaspyrnu og Alexander Scholz – fyrrum leikmanni Stjörnunnar – brást ekki bogalistin. Staðan orðin 2-1 og á síðustu sex mínútum leiksins bætti danska liðið við tveimur mörkum.

Mikael kom inn af bekknum alveg í blálokin þegar staðan var orðin 4-1 en það reyndust lokatölur.

Sverrir Ingi Ingason var á sínum stað í hjarta varnar grísku meistaranna PAOK er liðið reyndi að snúa einvígi sínu gegn rússneska liðinu Krasnodar sér í vil. Gestirnir frá Rússlandi voru 2-1 yfir eftir fyrri leikinn komust yfir með sjálfsmarki Giannis Michalidis á 73. mínútu og brakkan orðin brött fyrir PAOK.

Omar El Kaddouri jafnaði metin á 77. mínútu en Remy Cabella – fyrrum leikmaður Newcastle United – kom Krasnodar aftur yfir mínútu síðar og þar við sat. 

Lokatölur 2-1 fyrir Krasnodar sem er komið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. PAOK fer hins vegar í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Sverrir Ingi lék allan leikinn og nældi sér í gult spjald á 24. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×