Körfubolti

Sturluð tilfinning að setja þetta

Helgi Hrafn Ólafsson skrifar
Margrét Ósk tryggði Fjölni sigurinn með frábæri skoti undir lok leiks.
Margrét Ósk tryggði Fjölni sigurinn með frábæri skoti undir lok leiks. Vísir/Facebook-síða Fjölnis

Margrét Ósk Einarsdóttir var enn í smá spennufalli eftir að hún innsiglaði sigurinn hjá Fjölni gegn Breiðablik í kvöld, 71-74. Hún setti risastóran þrist með tæpar tuttugu sekúndur eftir til leiksloka sem gerði að verkum að Blikastelpur þurftu að taka erfiðan þrist til að reyna brúa bilið.

„Þetta var galopið, ég sá að þær voru ekki að koma út í mig og ég hugsaði að ég yrði bara að setja þetta skot,“ sagði Magga hress og iðaði öll ennþá 10 mínútum eftir að leikurinn var búinn. „Sturluð tilfinning að setja þetta, ég er ennþá að jafna mig.“

Magga var mögulega aðeins of hátt stemmd eftir vítaskotið því að hún brenndi af öðru vítaskoti sínu af tveimur fljótlega eftir þristinn. Bæði vítaskotin niður hefði algerlega gert úti um vonir Blika um að vinna.

„Ég var svolítið spennt eftir skotið þannig að ég fann þegar ég tók fyrra vítaskotið að það væri af. Svo náði ég að jafna þetta aðeins í seinna vítaskotinu,“ sagði hún um seinna vítið sem rataði rétta leið. Það vítaskot gerði að verkum að Breiðablik neyddist til að reyna við þriggja stiga skot á lokasekúndunum bara til að merja framlengingu. Svo varð ekki.

Fjölnir byrjaði leikinn ekkert sérlega vel og höfðu forystuna í mjög skamma stund í leiknum. Mesta forystan sem liðið hafði varð einmitt lokastaðan, þriggja stiga munur!

Magga sagði að margt hefði mátt fara betur í leiknum hjá liðinu sínu og að þær hafi náð að snúa blaðinu við eftir fyrri hálfleikinn. „Við þurftum að herða vörnina og bæta sóknarleikinn. Við fengum náttúrulega Ariönu úr sóttkví áðan, sko,“ sagði Magga um bandaríska leikmanninn í liðinu sínu, en hún kom einmitt úr sóttkví kl.15:30 í dag. Hún átti víst að hafa verið að læra kerfin á þjálfaraspjaldi Halldórs þjálfara rétt fyrir leikinn og á stuttri æfingu kl.17!

„Sóknarleikurinn var svolítið stirður en við gátum náttúrulega alltaf spilað vörn,“ hélt Magga áfram og það sást á því hvað Blikar áttu í miklum erfiðleikum með að skora á lokaköflum leiksins.

Nýliðarnir hafa þá unnið fyrstu tvo leikina sína og eru einar á toppi deildarinnar. Það kom Möggu ekkert sérstaklega á óvart, enda vissi hún alveg hvað liðið sitt var gott.

„Við vitum okkar markmið og er alveg sama hvar okkur var spáð, við ætlum að komast langt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×