Innlent

Óvenju erilsamur dagur hjá slökkviliðinu

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Starfsfólk Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sat ekki auðum höndum í dag, einkum vegna mikilla anna í sjúkraflutningum.
Starfsfólk Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sat ekki auðum höndum í dag, einkum vegna mikilla anna í sjúkraflutningum. Vísir/Vilhelm

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur sinnt vel yfir 100 sjúkraflutningum í dag sem þykir afar mikið miðað við það sem gengur og gerist. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er ekki algengt að slökkviliðið sinni mikið fleirum en 80 flutningum á dag. Annað slagið komi þó svona dagar en ekkert eitt frekar en annað skýrir þetta mikla annríki í dag.

Skráðir voru 105 sjúkraflutningar hjá slökkviliðinu á dagvakt í dag, þar af 17 svokallaðir covid-flutningar. Frá klukkan 19:30 hefur slökkviliðið sinnt minnst 15 til viðbótar. Auk þess sem mikið var að gera í sjúkraflutningum var nokkuð um minni háttar útköll á dælubíla.

Að sögn vakthafandi varðstjóra hjá slökkviliðinu var fjöldi covid-flutninga í dag nokkuð svipaður því sem verið hefur undanfarna daga en slökkviliðið sinnir til að mynda í einhverjum tilfellum fólki sem er í sóttkví eða einangrun og ekki hefur önnur úrræði til að komast í sýnatöku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×