Heimsmarkmiðin

Fjölgun nauðungarhjónabanda og ótímabærra þungana vegna COVID

Heimsljós
Tom Merilion/ Save the Children

Samkvæmt nýrri skýrslu Barnaheilla – Save the Children er óttast að nauðungarhjónaböndum fjölgi umtalsvert vegna COVID-19 farsóttarinnar. Í greiningu samtakanna er reiknað með að hálf milljón ungra stúlkna verði hnepptar í hjónaband á þessu ári til viðbótar við þær tólf milljónir stúlkna sem að jafnaði eru þröngvað í hjónaband á barnsaldri árlega.

Einnig er óttast að þungunum barnungra stúlkna fjölgi á árinu vegna faraldursins. Í skýrslunni er sagt að allt að ein milljón stúlkna kunni að verða barnshafandi á þessu ári, umfram það sem áður hafði verið reiknað með. Minnt er á að barnsfæðing er helsta dánarorsök stúlkna á aldrinum 15 til 19 ára.

Forsíða skýrslunnar

Stúlkur í Suður-Asíu eru í mestri áhættu og talið að í hóp giftra stúlkna bætist 200 þúsund stúlkur við fyrir áramót. Að mati samtakanna fjölgar nauðungarhjónaböndum einnig verulega í Vestur- og Mið-Afríku og rómönsku Ameríku að Karíbaeyjum meðtöldum. Ótímabærar þunganir verða hins vegar flestar í Austur-Afríku og Afríku sunnan Sahara.

Í skýrslunni er vakin athygli á þeirri staðreynd að síðasta aldarfjórðung hafi smám saman dregið úr nauðungarhjónaböndum en með COVID-19 heimsfaraldrinum verði beinlínis afturför á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×