Heimsmarkmiðin

Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sendir WFP heillaóskir vegna friðarverðlauna Nóbels

Heimsljós
WFP

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hlaut í dag friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu stofnunarinnar gegn hungri, fyrir að stuðla að bættum aðstæðum fyrir friði á átakasvæðum, og fyrir aðgerðir til að afstýra því að hungur sé notað sem vopn í átökum. „Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hefur um langt skeið verið ein af áherslustofnunum Íslands í neyðar- og mannúðaraðstoð og friðarverðlaun Nóbels eru að mínum dómi mjög verðskulduð viðurkenning fyrir ómetanlegt starf á átakasvæðum sem stuðlar að friði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sem sendi WFP formlegt heillaskeyti í morgun, auk þess að óska stofnuninni til hamingju á Twitter.

Íslensk stjórnvöld veita árleg kjarnaframlög til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, stærstu mannúðarsamtaka heims í baráttunni gegn hungri, en einnig er brugðist við neyðarköllum frá stofnunni eftir föngum. Framlög Íslands á þessu ári eru þegar 137 milljónir króna. WFP starfar í 88 löndum og aðstoðar tæplega eitt hundrað milljónir manna á ári hverju sem búa við alvarlegt matvælaóöryggi og hungur.

„Norska Nó­bels­nefnd­in leggur áherslu á að aðstoð sem eyk­ur fæðuör­yggi dreg­ur ekki aðeins úr hungri held­ur stuðlar einnig að því að auka horf­ur á stöðug­leika og friði. Mat­væla­áætl­un­in hef­ur tekið for­ystu­hlut­verk í samþætt­ingu mannúðar­starfs og friðarum­leit­ana með frumkvöðlaverkefnum í Suður-Ameríku, Afríku og Asíu,“ sagði í til­kynn­ingu frá Nóbelsnefndinni í Osló í morgun.

Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur leitt til fjölgunar jarðarbúa sem hafa vart til hnífs og skeiðar. WFP hefur aldrei í sögunni veitt fleirum matvælaaðstoð en á þessu ári. Ætlunin er að ná til 138 milljóna einstaklinga en þegar hafa um 85 milljónir manna notið matvælaaðstoðar stofnunarinnar. David Beasley framkvæmdastjóri WFP sagði fyrir nokkru á fundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna að án aukinna framlaga væri heimurinn á barmi hungurfaraldurs.

Höfuðstöðvar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna eru í Róm. Friðarverðlaunin verða formlega afhent 10. desember næstkomandi.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×