Lífið

Daði býst við því að heyra í RÚV á næstu dögum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daði Freyr var talinn mjög sigurstranglegur í Eurovision fyrr á þessu ári.
Daði Freyr var talinn mjög sigurstranglegur í Eurovision fyrr á þessu ári. RÚV

Daði Freyr virðist vera klár í slaginn að taka þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision í Rotterdam næsta vor. Daði Freyr og Gagnamagnið áttu að koma fram í Rotterdam síðasta vor en Eurovision-keppninni var aflýst vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Laginu Think About Things var spáð virkilega góðu gengi samkvæmt veðbönkum og talið eitt sigurstranglegasta lagið. Á næsta ári má aftur á móti ekki mæta til leiks með sama lag.

Daði ræddi málið við þýska blaðið Berliner Zeitung og hefur bloggsíðan virta WIWI-bloggs gert sér mat úr viðtalinu.

„Eini möguleikinn á því að við tökum þátt í keppninni er að RÚV sendi okkur beint í lokakeppnina. Mig langar að taka þátt en það er bara svo mikil vinna að taka þátt í forkeppninni á Íslandi og mér finnst skrýtið að þurfa fara í gegnum það ferli allt saman aftur,“ segir Daði Freyr við miðilinn þýska.

„Ef við fáum að fara beint í Eurovision getum við einbeitt okkur alfarið að því, í stað þess að einbeita okkur að tveimur mismunandi keppnum.“

Daði segist nú þegar vera kominn með hugmynd fyrir atriði Íslands í Eurovision sem gæti skilað þjóðinni langt í keppninni.

„Ég mun reyna að vinna þessa keppni og þá verð ég að semja lag sem hefur góða möguleika. Ef við getum farið saman nokkrir vinir í lokakeppnina og komið til baka með bikar þá væri það góða saga,“ segir Daði og bætir við að hann búist við að heyra frá RÚV á allra næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×