Heimsmarkmiðin

Ísland styrkir baráttuna gegn barnahjónaböndum í Malaví

Heimsljós
Gunnisal

Nauðungarhjónaböndum barnungra stúlkna og þungunum unglingsstúlkna, sérstaklega stúlkna yngri en fimmtán ára, hefur fækkað á síðustu árum. Þessar framfarir hafa stöðvast á tímum kórónaveirunnar. Nú fjölgar á ný hjónaböndum þar sem ungar stúlkur eru þvingaðar til að giftast, oft miklu eldri mönnum, og fleiri barnungar stúlkur verða barnshafandi.

Í gær, á alþjóðlegum degi stúlkubarnsins, var meðal annars vakin athygli á þessar afturför sem orðið hefur víða í heiminum í réttindamálum stúlkna. Í Malaví, samstarfsríki Íslendinga í tvíhliða þróunarsamvinnu, hefur meðal annars með stuðningi Íslands verið unnið að því að sporna gegn barnahjónaböndum á síðustu árum og á dögunum veitti utanríkisráðuneytið UN Women í Malaví 27 milljóna króna styrk í þeirri baráttu.

„Þvinguð hjónabönd barnungra stúlkna eru enn of algeng í Malaví en mikilvægar framfarir hafa átt sér stað á undanförnum árum, lagabreytingar sem banna hjónabönd undur átján ára aldri og samfélagsviðhorf eru að breytast. Því er þessi stuðningur við UN Women í Malaví mikilvægur til að sporna við bakslagi í þessum málaflokki vegna COVID,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir forstöðumaður íslenska sendiráðsins í Lilongve.

Á síðustu vikum, við upphaf skólaársins, hafa margar unglingsstúlkur ekki snúið til baka í skólann. Ráðuneyti jafnréttismála Malaví birti nýja könnun á dögunum sem sýnir uggvænlega fjölgun barnshafandi unglingsstúlkna og barnahjónabanda á tímum farsóttarinnar. Í Mangochi, helsta samstarfshéraði Íslands, eru til dæmis skráð tæplega sex þúsund barnahjónabönd það sem af er ári.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×