Samstarf

Alfreð: Fimm góðar hugmyndir að vinnu með námi

Alfreð

Flestir þeir sem gengið hafa í skóla þekkja það að nám er ekkert annað en vinna. Menntun borgar sig vissulega til lengri tíma en í millitíðinni getur verið snjallt að hafa vinnu á kantinum. Og þá er gott að hafa atvinnuvefinn Alfreð með sér í liði. Hér höfum tekið saman nokkra punkta, í gamni og alvöru, um störf sem auðgað geta líf og fjárhag fátækra námsmanna. Stóra spurningin er þó kannski: Hvaða störf henta best með krefjandi námi?

Tilvonandi læknar og hjúkrunarfólk

Heilbrigðiskerfið verður að teljast heppilegt starfsumhverfi fyrir tilvonandi heilbrigðisstarfsmenn. Þar er um auðugan garð að gresja. Væri ekki upplagt að rækta mannlega þáttinn með hlutastarfi á sjúkra- eða elliheimili? Rólegar næturvaktir gætu jafnvel komið sér vel við að leggja á minnið latnesk líffæraheiti.

Tilvonandi lögspekingar

Lögfræðinám getur opnað dyr að starfsframa á ýmsum sviðum innan réttarkerfisins, fjármálaheimsins eða í stjórnkerfinu. Auðvitað skiptir máli hvort fyrirmynd lögfræðinemans er Saul Goodman eða Matlock. En heyrst hefur að hlutastörf hjá löggunni hafi reynst lærdómsríkur snertiflötur við lög og reglu fyrir upprennandi lagarefi.

Tilvonandi viðskiptafræðingar

Viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér er frasi sem oft heyrist í viðskiptalífinu. Og hvaða staður er þá betri til að læra hið sanna um verslun og vísindi. Það er alltaf þörf fyrir viðskiptavit í afgreiðslustörfum fyrir upprennandi viðskiptamógúla.

Tilvonandi mannvinir

Sum störf eru meira gefandi en önnur. Persónuleg aðstoð við fatlaða getur opnað nýja og fallega sýn á heiminn. Það skiptir ekki máli hvaða nám þú stundar en þó má ætla að þeir sem leggja stund á félagsráðgjöf, sálfræði, þroskaþjálfun og fötlunarfræði mundu taka slíkum störfum fegins hendi.

Tilvonandi góðborgarar

Það er sama hvaða nám þú stundar. Vinna við eldamennsku af öllu tagi er mannbætandi reynsla. Að kunna þá list að flippa hamborgara á hárréttri stundu er t.d. hæfileiki sem fylgir þér allt lífið. Slík þekking gerir hvern flutningabílstjóra, lækni, lögfræðing og listmálara að hróki alls fagnaðar í grillveislum lífsins.

Fylltu út prófíl á Alfreð og sæktu um starf við hæfi

Þessi umfjöllun er auðvitað ekki vísindaleg á neinn hátt. Við viljum bara vekja námsmenn til umhugsunar um allan þann lærdóm sem þátttaka í atvinnulífinu færir okkur. Það skiptir máli að horfa á tækifærin með opnum hug og grípa þau sem gefast. Þegar allt kemur til alls er þetta ekki spurningin um að vinna við það sem þú elskar heldur elska það sem þú vinnur við.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×