Samstarf

Alvotech verði leiðandi á sviði líftæknilyfja á heimsvísu

Alvotech
Hjá Alvotech starfa nú um 500 vísindamenn og sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn
Hjá Alvotech starfa nú um 500 vísindamenn og sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn

Lyfjafyrirtækið Alvotech hefur metnaðarfull markmið um að auka aðgengi sjúklinga um allan heim að hágæða líftæknilyfjum, lækka lyfjaverð og auka lífsgæði. Fyrirtækið vinnur að þróun nýrra líftæknilyfja (líftæknilyfshliðstæður, biosimilars), sem notuð eru við erfiðum sjúkdómum eins og gigt, psoriasis og krabbameini. Alvotech hefur ráðið til sín tugi sérfræðinga á þessu ári og auglýsti nýlega fjölda nýrra starfa á Íslandi fyrir háskólamenntað fólk.

Alvotech hefur skýra stefnu í mannauðsmálum og er kynjahlutfall fyrirtækisins jafnt og bakgrunnur starfsmanna fjölbreyttur.

500 vísindamenn í fjórum löndum

Alvotech er nú með starfsemi í Bandaríkjunum, í Þýskalandi og Sviss, auk Íslands þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru. Hjá Alvotech starfa nú um 500 vísindamenn og sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn. Róbert Wessman, stofnandi Alvotech tók fyrstu skóflustunguna að nýju hátæknisetri fyrirtækisins í október 2013 og að baki Alvotechstanda öflugir alþjóðlegir fjárfestar. Setrið er búið fullkomnustu tækjum og búnaði til þróunar og framleiðslu líftæknilyfja.

 Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Alvotech

Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Alvotech, segir mikil verðmæti felast í fjölbreyttu og alþjóðlegu vinnuumhverfi.

„Starfsfólk okkar á Íslandi er af 45 þjóðernum og við höfum dregið að okkur þekkingu víðsvegar að úr heiminum við uppbyggingu Alvotech. Til að mynda hafa 40 fjölskyldur frá Indlandi flust til Íslands til að taka þátt í uppbyggingu Alvotech með okkur. Kjarni fyrirtækisins er hinsvegar íslenskur og hjá fyrirtækinu starfa fjöldi reynslumikilla íslenskra vísindamanna og sérfræðinga.“

Starfsfólk Alvotech á Íslandi er af 45 þjóðernum

Sigríður Elín segir að kynjaskipting fyrirtækisins sé nokkuð jöfn, bæði er varðar heildarfjölda starfsmanna fyrirtækisins og hlutfall kvenna í stjórnendastörfum.

„Við höfum markað okkur skýra stefnu í þessum málum og það er ánægjulegt að kynjahlutfall fyrirtækisins sé jafnt og að bakgrunnur starfsmanna sé fjölbreyttur.“

„Það er markmið okkar að gera enn betur og halda áfram að þróa vinnustað sem fagnar fjölbreytileika og jöfnum tækifærum.“

Hátæknisetur Alvotech er búið fullkomnustu tækjum og búnaði til þróunar og framleiðslu líftæknilyfja

Skapandi og lifandi fyrirtækjamenning

Fyrirtækjamenning Alvotech er í senn mjög lifandi og skapandi þar sem áhersla er lögð á að gefa starfsmönnum tækifæri til að vaxa og dafna í sínu starfi. Miklar kröfur eru gerðar til lyfjafyrirtækja um gæði þróunar og framleiðslu og hefur Alvotech sett sér það markmið að vera í fremstu röð á sínu sviði.

Sigríður Elín segir það mikla hvatningu að sjá að miklar væntingar eru gerðar til fyrirtækisins og að fyrirtækjamenning Alvotech byggi á þessu trausti, metnaði, samheldni og ástríðu til að verða í fremstu röð.

Alvotech auglýsir eftir nýjum liðsmönnum á heimasíðu sinni

„Við höfum góða blöndu af reyndum vísindamönnum og sérfræðingum annarsvegar og svo hinsvegar vísindamönnum framtíðarinnar sem er unga fólkið sem hefur góða menntun og mikinn metnað til að taka þátt í þessu með okkur.“

„Þegar við ráðum til okkar fólk horfum við til þess að viðkomandi hafi þá reynslu og menntun sem til þarf en ekki síður að ákveðin grunngildi og viðhorf falli að því sem við leitum að hverju sinni“.

Alvotech auglýsti nýlega eftir nýjum liðsmönnum á Íslandi og hægt er að kynna sér störf í boði og almennnar upplýsingar um fyrirtækið á alvotech.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×