Sport

Anníe Mist: Þetta er alls ekki gleymt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir stefnir á endurkomu á næsta ári.
Anníe Mist Þórisdóttir stefnir á endurkomu á næsta ári. Instagram/@anniethorisdottir

Lengsta CrossFit tímabili sögunnar lauk loksins í gær, meira en heilu ári eftir að það byrjaði. Anníe Mist Þórisdóttir missti af tímabilinu í ár en ætlar að koma sterk til baka eftir barneignarfrí á nýju ári.

Anníe Mist ræddi um árið 2020 í CrossFit heiminum í viðtali við Svövu Kristínu Grétardóttur, íþróttafréttakonu á Stöð tvö, en mikið gekk á hjá CrossFit fjölskyldunni í sumar.

Heimsleikarnir tókust mjög vel og Svava Kristín spurði Anníe Mist hvernig staðan væri í CrossFit heiminum og einnig af því hvort að allt sem gekk á í sumar væri nú gleymt.

„Þetta er alls ekki gleymt. Það er náttúrulega bara tekið eitt skref í einu og það er kominn nýr eigandi af CrossFit. Það var stærsta skrefið sem þurfti að taka. Þessi eigandi gat ekki ekki verið lengur eigandi,“ sagði Anníe Mist Þórisdóttir og átti þá við Greg Glassman sem seldi CrossFit til Eric Roza í sumar.

„Hlutirnir eru smám saman að breytast núna og mér líkar ofboðslega vel við manninn sem keypti CrossFit [Eric Roza]. Hann er meiri viðskiptamaður og er sjálfur á fullu í CrossFit. Hann hefur átt stöð og á stöð ennþá. Hann hefur mikla trú á CrossFit keppninni, heimsleikunum og að þetta eigi allt að vera saman,“ sagði Anníe Mist sem horfir nú mun jákvæðari augun á framtíð CrossFit heldur en hún gerði í öllum hamaganginum í sumar.

„Ég er mjög bjartsýn á framtíðina og það er breytingin. Að sjálfsögðu eru samt fleiri skref sem þarf að taka. Við erum kominn með íþróttamannasamtök og íþróttamannaráð sem ég fæ að vera hluti af líka. Við erum að taka þetta eitt skref í einu og erum að vinna að því saman að gera sportið að því magnaða sporti sem þetta á að vera,“ sagði Anníe Mist sem útskýri aðeins sína þátttöku í íþróttamannaráðinu.

„Við vorum búin að vera funda með þeim fyrir mót, tala um hluti sem gætu farið betur og tala um hluti sem gætu mögulega komið upp sem er hægt að koma í veg fyrir. Við höfum farið yfir það hvernig sé hægt að gera keppnina meira örugga fyrir þá sem eru að keppa,“ sagði Anníe Mist en með þessu hefur CrossFit heimurinn stigið það skref að margir geti unnið saman að því að gera íþróttina betri.

„Að það sé ekki einn maður sem stjórni öllu og geti breytt ef hann er ekki ánægður með það hvernig hlutirnir eru. Það er ýmislegt búið að ganga á síðustu árin. Núna er verið að hlusta á okkur og við erum að fá að taka þátt í jákvæðum breytingum innan CrossFit,“ sagði Anníe Mist.

Anníe Mist ætlar sjálf að reyna að komast inn á heimsleikana á næsta ári.

„Það er allavega markmiðið. Það eru komnir rúmir tveir mánuðir frá fæðingunni og þetta er að ganga mikið hægar en ég bjóst við en ég er líka mjög óþolinmóð. Þetta er hægar en ég bjóst við en þetta er á réttri leið. Mér líður ótrúlega vel og það gengur svo svakalega vel með litlu dömuna mína þannig að maður getur ekki kvartað.,“ sagði Anníe Mist

„Nú er bara að vera tilbúin fyrir byrjunina á mótinu sem verður í lok febrúar á næsta ári. Það er fyrsta markmiðið,“ sagði Anníe Mist en hún er þar að tala um The Open sem er fyrsti hluti undankeppni heimsleikanna. Anníe Mist tryggði sér þátttökurétt á heimsleikunum í ár með góðri frammistöðu á The Open í fyrra en varð síðan að gefa eftir sætið sitt þegar hún varð ófrísk.

Það má sjá viðtalið við Anníe Mist hér fyrir neðan.

Klippa: Anníe Mist um eigandaskiptin og framtíð CrossFit



Fleiri fréttir

Sjá meira


×