Skoðun

Ógnar­stjórn er víða í at­vinnu­lífinu!

Flosi Eiríksson skrifar

Viðbrögð og umræður um mál sem upp koma geta varpað skýru ljósi á ýmsa þætti í samfélaginu. Þetta hefur komið mjög skýrt fram í umræðum um COVID-smit um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni og forkastanlegum vinnubrögðum útgerðarinnar, Hraðfrystihússins Gunnvarar hf.

Í viðtali við Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra, kom fram m.a. að þetta væri nú ekki einsdæmi og að ,,ógnarstjórn væri víða í atvinnulífinu“ það segir býsna magnaða sögu um okkar samfélag að þessi yfirlýsing forystumanns á hægri væng stjórnmálanna hafi ekki fengið mikil viðbrögð eða mótmæli. Það væri ástæða fyrir suma að velta fyrir sér viðbrögðunum hjá leiðarahöfundum og ýmsum talsmönnum atvinnurekenda ef einhver í verkalýðshreyfingunni hefði tekið svona til orða. Ég er til dæmis að vísa til forystumanna SAF svo það sé bara sagt. Ráðherrann vonaði líka að hásetinn sem lýsti aðstæðum um borð myndi ekki missa vinnuna, en virtist allt eins gera ráð fyrir því, sem byggir trúlega á reynslu hans og samskiptum við útgerðarmenn. Það var óhugnanlegt að lesa um fyrirmæli útgerðarinnar um að sjómennirnir mættu ekki ræða málið. Aftur var það lýsandi að ekki hefur heyrst múkk eða mö í þeim sem oft tala mikið um málfrelsið og réttindi fólks til að hrauna yfir minnihlutahópa og útvarpa fordómum sínum og hatursorðræðu.

Annað mál kom upp í vikunni þar sem fyrirtækið Hvalur hf. var dæmt til að greiða starfsmönnum sínum rúmar 100 milljónir í vandgoldin laun, aftur í tímann. Verkalýðsfélag Akranes hefur rekið það mál af einurð fyrir hönd sinna félagsmanna, en forsvarsmenn Hvals hafa meðal annars borið fyrir sig að starfsmennirnir hafi sýnt „tómlæti“ af því að þeir áttuðu sig ekki strax á svikunum og því eigi þeir ekkert skilið! Ekki hefur farið mikið fyrir umræðu um þennan launaþjófnað eða þann ósvífna málflutning sem þarna hefur komið fram. Engu að síður standa samtök atvinnurekenda gegn því að löggjöf sem lofað var í tengslum við lífskjarasamninganna, um viðurlög við launaþjónaði, nái fram að ganga. Ógnarstjórnin í atvinnnulífinu er víða.

Þessi tvö mál varpa skýru ljósi á þann tvískinnung sem er í tali sumra talsmanna atvinnurekenda um samfélagslega ábyrgð þeirra og yfirlýsingum um að hagsmunir starfsfólks séu þeim efst í hug. Fréttatilkynningar og auglýsingaherferðir hafa það að markmiði að hafa áhrif á umræðuna í samfélaginu, þagga niður í gagnrýni umræðu og skapa ákveðna jákvæða ímynd. Öllum þeim fjármunum sem í það fara og orku væri betur varið í að standa við kjarasamninga og tryggja lögboðin réttindi launafólks.

Höfundur er framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×