Viðskipti innlent

Kröfur upp á 433 milljónir í þrotabú Tölvuteks

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Tölvutek var tekið til gjaldþrotaskipta á síðasta ári.
Tölvutek var tekið til gjaldþrotaskipta á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Alls var kröfum upp á tæplega 433 milljónir króna lýst í þrotabú Tölvuteks, sem samþykkt var að taka til gjaldþrotaskipta í júlí á síðasta ári. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu en mbl greindi fyrst frá.

Tæplega 61 milljón fékkst upp í kröfurnar, eða 14% heildarkrafna. Þar af voru 5,3 milljónir sem fengust upp í samþykktar búskröfur, en samþykktar veðkröfur voru rúmlega 5,3 milljónir, og fékkst upp í 29,32% þeirra.

Ekki kom til úthlutunar upp í forgangs-, almennar og eftirstæðar kröfur. Samþykktar forgangskröfur námu tæðum 76 milljónum króna, en ekki var tekin afstaða til almennra og eftirstæðra krafna.

Í kjölfar þess að búið var tekið til gjaldþrotaskipta síðasta sumar var stofnað nýtt félag með sama nafni, og starfar það í dag sem dótturfélag Origo.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×