Viðskipti innlent

Enga lá­deyðu að sjá á í­búða­markaði enn sem komið er

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Árið virðist fara nokkuð vel af stað á fasteignamarkaðnum samkvæmt Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.
Árið virðist fara nokkuð vel af stað á fasteignamarkaðnum samkvæmt Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. MYND/VILHELM

Viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu voru talsverð í mars síðastliðnum. Var alls 584 kaupsamningum þinglýst sem eru 27 fleiri samningar en í mars í fyrra.

Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans í dag sem ber yfirskriftina „Engin ládeyða á íbúðamarkaði“.

Í Hagsjánni er vísað í upplýsingar frá Þjóðskrá um fjölda þinglýstra kaupsamninga sem voru 5% fleiri í mars í ár en í mars 2019.

„Búast hefði mátt við því að viðskipti drægjust eitthvað samaní ljósi aðstæðna en þær virðast ekki hafa haft teljandi áhrif. Þó ber að hafa í huga að hluti viðskiptannaáttu sér líklega stað í febrúar þar sem nokkur tímatöf er frá undirritun kaupsamnings þar til þinglýsingu er lokið.

Það sem af er ári hefur1.904 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu verið þinglýst sem er 5% aukning miðað við sama tíma í fyrra. Árið fer því nokkuð vel af stað á íbúðamarkaði og er mánaðarlegur meðalfjöldi viðskipta hærri en það sem hefur sést á allra síðustu árum,“ segir í Hagsjánni.

Af sveitarfélögunum innan höfuðborgarsvæðisins er aukningin hlutfallslega mest í Kópavogi:

„Þar var 107 kaupsamningum þinglýst til samanburðar við 87 samningum fyrir ári síðan. Í Mosfellsbæ var einnig nokkuð mikil aukning í mars þar sem 10% fleiri kaupsamningum var þinglýst.

Þó fórmeirihluti íbúðaviðskipta í mars fram í Reykjavík,en þar var 333 kaupsamningum þinglýst, sem er aukning upp á 5% milli ára.“

Þá segir í Hagsjánni að neysla hafi almennt tekið ákveðnum breytingum vegna kórónuveirufaraldursins en þær aðstæður virðast ekki hafa haft áhrif á fasteignamarkaðinn, að minnsta kosti enn sem komið er.

Mælingar Gallup hafi þó sýnt fram á minni líkur á stórkaupum hjá landsmönnum í mars en það hafi aðallega verið vegna færri fyrirhugaðra utanlandsferða. Þannig virðist fólk jafnvel huga að fasteignakaupum í auknum mæli nú en áður.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×