Lof mér að falla - sýnishorn

Kvikmyndin Lof mér að falla segir frá hinni 15 ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Leikstjóri myndarinnar er Baldvin Z en hann skrifar einnig handriti myndarinnar ásamt Birgi Erni Steinarssyni. Með aðalhlutverk í Lof mér að falla fara Elín Sif Halldórsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir en leikarinn Þorsteinn Bachman fer einnig með stórt hlutverk. Í myndinni fara einnig með hlutverk Sturla Atlason, Edda Björgvinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Halldór Halldórsson. Framleiðendur myndarinnar eru þeir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson en meðframleiðendur eru Markus Selin og Jukka Helle. Lof mér að falla verður frumsýnd hér á landi 7. september næstkomandi.

15455
01:50

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir