Sport „Mikilvægt að ná upp stöðugleika“ Valsarar stukku uppí þriðja sæti Bestu deildinni með sigri á KA í dag. Patrik Pedersen skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Vals sem vann þar með annan leikinn í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Fótbolti 11.5.2024 20:01 Bjarni Mark: Sendi hjarta til baka, enda elska ég þá alla Valur vann sannfærandi sigur á KA í 6. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Staðan í lok leiks var 3-1 fyrir Val eftir tvö mörk frá Patrik Pedersen. Valur náði þar með í sinn annan sigur í röð og eru komnir á gott ról. Fótbolti 11.5.2024 19:38 Meistarar Madrid halda áfram að vinna Nýkrýndir Spánarmeistarar Real Madrid unnu afar öruggan 4-0 sigur er liðið heimsótti fallið lið Granada í spænsku úrvaldeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 11.5.2024 18:44 Uppgjörið: Njarðvík - Valur 91-88 | Heimamenn knúðu fram oddaleik Oddaleik þarf til að skera úr um hvort Njarðvík eða Valur muni leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Njarðvíkingar voru með bakið upp við vegg, en unnu dramatískan sigur á heimavelli í fjórða leik liðanna í kvöld, 91-88. Körfubolti 11.5.2024 18:31 Lærisveinar Freys á leið í umspil þökk sé sigri annars Íslendingaliðs Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Kortrijk eru á leið í umspil um að halda sæti sinni í efstu deild í Belgíu, þrátt fyrir 3-1 tap gegn Charleroi í dag. Fótbolti 11.5.2024 18:16 Bologna nálgast Meistaradeildina í fyrsta sinn í sextíu ár Bologna vann gríðarlega mikilvægan 2-0 útisigur er liðið heimsótti Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 11.5.2024 18:00 Davíð Smári: Við erum búnir að æfa þessa íþrótt síðan við fæddumst Vestri tapaði sínum öðrum leik í röð í Bestu deildinni í dag. 3-0 ósigur á Akranesi gegn heimamönnum staðreynd í leik þar sem lítið gekk upp hjá gestunum. Fótbolti 11.5.2024 16:55 Þrjú íslensk mörk í risasigri Fortuna Sittard María Ólafsdóttir Gros og Hildur Antonsdóttir voru báðar á skotskónum er Fortuna Sittard vann vægast sagt öruggan 7-1 útisigur gegn PEC Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 11.5.2024 16:40 Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Noregur og Danmörk skoruðu helling af mörkum en gerðu að lokum jafntefli, 36-36, í Gulldeildinni í handbolta karla, í Osló í dag. Handbolti 11.5.2024 16:31 Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Ísland tryggði sér farseðil á heimsmeistaramótið í handbolta 2025 með afar öruggum 24-37 sigri gegn Eistlandi ytra. Ísland vann fyrri leik liðanna 50-25 og einvígið samanlagt 87-49. Handbolti 11.5.2024 16:29 Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Luton er svo gott sem fallið og fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þar með lokið, eftir að liðið tapaði 3-1 fyrir West Ham í dag. Sex leikjum var að ljúka og ljóst að allir þrír nýliðarnir í deildinni kveðja hana um næstu helgi. Enski boltinn 11.5.2024 16:16 Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Valur vann sinn annan sigur í röð í Bestu-deild karla er liðið lagði KA á heimavelli, 3-1. Gylfi Þór Sigurðsson misnotaði vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en það kom ekki að sök. Íslenski boltinn 11.5.2024 16:15 Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir Chelsea vann mikilvægan 3-2 endurkomusigur er liðið heimsótti Nottingham Forest í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 11.5.2024 16:00 Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna ÍA lék í dag sinn fyrsta heimaleik á sínum aðalvelli, ELKEM vellinum, þegar Vestramenn komu í heimsókn í 6. umferð Bestu deildarinnar. Lauk leiknum með 3-0 sigri heimamanna. Íslenski boltinn 11.5.2024 15:57 Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru fallnir niður úr ensku úrvalsdeildinni, eftir eins árs dvöl, en þetta varð endanlega ljóst þegar liðið tapaði gegn Tottenham í dag, 2-1, í næstsíðustu umferð. Enski boltinn 11.5.2024 15:54 Karólína með stjörnum á toppi listans Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur verið algjör lykilmaður hjá Leverkusen í vetur, sem lánsmaður frá Bayern München, og hún átti enn eina stoðsendinguna í 3-1 sigri á Duisburg í dag. Fótbolti 11.5.2024 14:43 Kristall hetjan en fagnaði ósæmilega og fékk rautt Kristall Máni Ingason skoraði sigurmark úr víti, rétt fyrir lok leiks, sem svo gott sem tryggði Sönderjyske titilinn í dönsku 1. deildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 11.5.2024 14:26 Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Eftir sex marka tap gegn Noregi á fimmtudag náðu lærisveinar Dags Sigurðssonar í króatíska landsliðinu í handbolta að merja sigur á Argentínu í dag, á æfingamóti í Osló, 20-19. Handbolti 11.5.2024 14:03 Algjör martröð eins manns þegar Celtic vann erkióvininn Skotlandsmeistaratitilinn blasir við Brendan Rodgers og hans mönnum í Celtic eftir 2-1 sigur á erkifjendunum í Rangers í Glasgow í dag. Fótbolti 11.5.2024 13:54 Titillinn hrifsaður úr greipum Diljár og fall blasir við Sveini Diljá Ýr Zomers og stöllur hennar í OH Leuven urðu í annað sinn á einni viku að sætta sig við naumt tap í toppslag í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Titillinn er þar með svo gott sem runninn þeim úr greipum. Fótbolti 11.5.2024 13:41 Gvardiol skaut City á toppinn Manchester City var í stuði gegn Fulham í dag og kom sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, nú þegar meistararnir eiga tvo leiki eftir. Enski boltinn 11.5.2024 13:22 Stuðningsmenn stöðvuðu liðsrútuna og leik Standard frestað Belgíska stórveldið Standard Liege má muna fífil sinn fegurri og óánægðir stuðningsmenn ollu því að liðið gat ekki spilað leik sinn við Westerlo í gærkvöld. Fótbolti 11.5.2024 12:30 Andri Lucas fékk kanilstykki í verðlaun Andri Lucas Guðjohnsen skoraði sitt þrettánda mark fyrir Lyngby í gær og er markahæstur í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Því var vel fagnað í klefanum eftir 2-1 sigurinn gegn OB í gær, og Andri Lucas er staðráðinn í að verða markakóngur. Fótbolti 11.5.2024 12:01 Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Eistlendingar viðurkenna að nær ómögulegt sé fyrir þá að slá út Íslendinga í umspilinu um sæti á HM í dag, enda fór fyrri leikur liðanna 50-25 í Laugardalshöll. Handbolti 11.5.2024 11:23 Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Stutt hlé varð á blaðamannafundi körfuboltastjörnunnar Luka Doncic í fyrrakvöld vegna þess að háværar stunur fóru að heyrast í hátölurunum. Doncic var þó fljótur að slá á létta strengi. Körfubolti 11.5.2024 10:21 Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Mörkin tvö í Garðabæ í gær, þegar Stjarnan og Fram gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik sjöttu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta, voru ekki sérstaklega ólík. Mörkin má nú sjá á Vísi. Íslenski boltinn 11.5.2024 09:42 Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Nikola Jokic var í aðalhlutverki þegar meistarar Denver Nuggets náðu sínum fyrsta sigri í einvíginu við Minnesota Timberwolves með 117-90 sigri í nótt. Indiana Pacers minnkuðu muninn í 2-1 í einvígi sínu við New York Knicks. Körfubolti 11.5.2024 09:28 „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Það eru spennandi tímar fram undan hjá karlaliði Vals í handknattleik. Handbolti 11.5.2024 08:02 Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Framkvæmdastjóri HSÍ harmar grafalvarlega stöðu vegna ungs afreksíþróttafólks sem þarf að treysta á hundruð þúsunda útgjöld foreldra til að taka þátt í landsliðsverkefnum. Ráðherra íþróttamála segir ekki hægt að bregðast við stöðunni fyrr en á næsta ári. Handbolti 11.5.2024 07:01 Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Sýnt verður beint frá þrettán íþróttaviðburðum, meðal annars leikjum í Bestu deild karla og Subway deild karla. Fyrsta útsending dagsins hefst klukkan 08:00 og sú síðasta klukkan 23:00. Sport 11.5.2024 06:01 « ‹ 9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 334 ›
„Mikilvægt að ná upp stöðugleika“ Valsarar stukku uppí þriðja sæti Bestu deildinni með sigri á KA í dag. Patrik Pedersen skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Vals sem vann þar með annan leikinn í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Fótbolti 11.5.2024 20:01
Bjarni Mark: Sendi hjarta til baka, enda elska ég þá alla Valur vann sannfærandi sigur á KA í 6. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Staðan í lok leiks var 3-1 fyrir Val eftir tvö mörk frá Patrik Pedersen. Valur náði þar með í sinn annan sigur í röð og eru komnir á gott ról. Fótbolti 11.5.2024 19:38
Meistarar Madrid halda áfram að vinna Nýkrýndir Spánarmeistarar Real Madrid unnu afar öruggan 4-0 sigur er liðið heimsótti fallið lið Granada í spænsku úrvaldeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 11.5.2024 18:44
Uppgjörið: Njarðvík - Valur 91-88 | Heimamenn knúðu fram oddaleik Oddaleik þarf til að skera úr um hvort Njarðvík eða Valur muni leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Njarðvíkingar voru með bakið upp við vegg, en unnu dramatískan sigur á heimavelli í fjórða leik liðanna í kvöld, 91-88. Körfubolti 11.5.2024 18:31
Lærisveinar Freys á leið í umspil þökk sé sigri annars Íslendingaliðs Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Kortrijk eru á leið í umspil um að halda sæti sinni í efstu deild í Belgíu, þrátt fyrir 3-1 tap gegn Charleroi í dag. Fótbolti 11.5.2024 18:16
Bologna nálgast Meistaradeildina í fyrsta sinn í sextíu ár Bologna vann gríðarlega mikilvægan 2-0 útisigur er liðið heimsótti Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 11.5.2024 18:00
Davíð Smári: Við erum búnir að æfa þessa íþrótt síðan við fæddumst Vestri tapaði sínum öðrum leik í röð í Bestu deildinni í dag. 3-0 ósigur á Akranesi gegn heimamönnum staðreynd í leik þar sem lítið gekk upp hjá gestunum. Fótbolti 11.5.2024 16:55
Þrjú íslensk mörk í risasigri Fortuna Sittard María Ólafsdóttir Gros og Hildur Antonsdóttir voru báðar á skotskónum er Fortuna Sittard vann vægast sagt öruggan 7-1 útisigur gegn PEC Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 11.5.2024 16:40
Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Noregur og Danmörk skoruðu helling af mörkum en gerðu að lokum jafntefli, 36-36, í Gulldeildinni í handbolta karla, í Osló í dag. Handbolti 11.5.2024 16:31
Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Ísland tryggði sér farseðil á heimsmeistaramótið í handbolta 2025 með afar öruggum 24-37 sigri gegn Eistlandi ytra. Ísland vann fyrri leik liðanna 50-25 og einvígið samanlagt 87-49. Handbolti 11.5.2024 16:29
Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Luton er svo gott sem fallið og fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þar með lokið, eftir að liðið tapaði 3-1 fyrir West Ham í dag. Sex leikjum var að ljúka og ljóst að allir þrír nýliðarnir í deildinni kveðja hana um næstu helgi. Enski boltinn 11.5.2024 16:16
Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Valur vann sinn annan sigur í röð í Bestu-deild karla er liðið lagði KA á heimavelli, 3-1. Gylfi Þór Sigurðsson misnotaði vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en það kom ekki að sök. Íslenski boltinn 11.5.2024 16:15
Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir Chelsea vann mikilvægan 3-2 endurkomusigur er liðið heimsótti Nottingham Forest í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 11.5.2024 16:00
Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna ÍA lék í dag sinn fyrsta heimaleik á sínum aðalvelli, ELKEM vellinum, þegar Vestramenn komu í heimsókn í 6. umferð Bestu deildarinnar. Lauk leiknum með 3-0 sigri heimamanna. Íslenski boltinn 11.5.2024 15:57
Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru fallnir niður úr ensku úrvalsdeildinni, eftir eins árs dvöl, en þetta varð endanlega ljóst þegar liðið tapaði gegn Tottenham í dag, 2-1, í næstsíðustu umferð. Enski boltinn 11.5.2024 15:54
Karólína með stjörnum á toppi listans Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur verið algjör lykilmaður hjá Leverkusen í vetur, sem lánsmaður frá Bayern München, og hún átti enn eina stoðsendinguna í 3-1 sigri á Duisburg í dag. Fótbolti 11.5.2024 14:43
Kristall hetjan en fagnaði ósæmilega og fékk rautt Kristall Máni Ingason skoraði sigurmark úr víti, rétt fyrir lok leiks, sem svo gott sem tryggði Sönderjyske titilinn í dönsku 1. deildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 11.5.2024 14:26
Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Eftir sex marka tap gegn Noregi á fimmtudag náðu lærisveinar Dags Sigurðssonar í króatíska landsliðinu í handbolta að merja sigur á Argentínu í dag, á æfingamóti í Osló, 20-19. Handbolti 11.5.2024 14:03
Algjör martröð eins manns þegar Celtic vann erkióvininn Skotlandsmeistaratitilinn blasir við Brendan Rodgers og hans mönnum í Celtic eftir 2-1 sigur á erkifjendunum í Rangers í Glasgow í dag. Fótbolti 11.5.2024 13:54
Titillinn hrifsaður úr greipum Diljár og fall blasir við Sveini Diljá Ýr Zomers og stöllur hennar í OH Leuven urðu í annað sinn á einni viku að sætta sig við naumt tap í toppslag í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Titillinn er þar með svo gott sem runninn þeim úr greipum. Fótbolti 11.5.2024 13:41
Gvardiol skaut City á toppinn Manchester City var í stuði gegn Fulham í dag og kom sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, nú þegar meistararnir eiga tvo leiki eftir. Enski boltinn 11.5.2024 13:22
Stuðningsmenn stöðvuðu liðsrútuna og leik Standard frestað Belgíska stórveldið Standard Liege má muna fífil sinn fegurri og óánægðir stuðningsmenn ollu því að liðið gat ekki spilað leik sinn við Westerlo í gærkvöld. Fótbolti 11.5.2024 12:30
Andri Lucas fékk kanilstykki í verðlaun Andri Lucas Guðjohnsen skoraði sitt þrettánda mark fyrir Lyngby í gær og er markahæstur í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Því var vel fagnað í klefanum eftir 2-1 sigurinn gegn OB í gær, og Andri Lucas er staðráðinn í að verða markakóngur. Fótbolti 11.5.2024 12:01
Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Eistlendingar viðurkenna að nær ómögulegt sé fyrir þá að slá út Íslendinga í umspilinu um sæti á HM í dag, enda fór fyrri leikur liðanna 50-25 í Laugardalshöll. Handbolti 11.5.2024 11:23
Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Stutt hlé varð á blaðamannafundi körfuboltastjörnunnar Luka Doncic í fyrrakvöld vegna þess að háværar stunur fóru að heyrast í hátölurunum. Doncic var þó fljótur að slá á létta strengi. Körfubolti 11.5.2024 10:21
Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Mörkin tvö í Garðabæ í gær, þegar Stjarnan og Fram gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik sjöttu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta, voru ekki sérstaklega ólík. Mörkin má nú sjá á Vísi. Íslenski boltinn 11.5.2024 09:42
Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Nikola Jokic var í aðalhlutverki þegar meistarar Denver Nuggets náðu sínum fyrsta sigri í einvíginu við Minnesota Timberwolves með 117-90 sigri í nótt. Indiana Pacers minnkuðu muninn í 2-1 í einvígi sínu við New York Knicks. Körfubolti 11.5.2024 09:28
„Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Það eru spennandi tímar fram undan hjá karlaliði Vals í handknattleik. Handbolti 11.5.2024 08:02
Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Framkvæmdastjóri HSÍ harmar grafalvarlega stöðu vegna ungs afreksíþróttafólks sem þarf að treysta á hundruð þúsunda útgjöld foreldra til að taka þátt í landsliðsverkefnum. Ráðherra íþróttamála segir ekki hægt að bregðast við stöðunni fyrr en á næsta ári. Handbolti 11.5.2024 07:01
Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Sýnt verður beint frá þrettán íþróttaviðburðum, meðal annars leikjum í Bestu deild karla og Subway deild karla. Fyrsta útsending dagsins hefst klukkan 08:00 og sú síðasta klukkan 23:00. Sport 11.5.2024 06:01