Tíska og hönnun

Parker fékk tískuverðlaun

Leikkonunni Sarah Jessica Parker hefur verið veitt tískuverðlaunin Facion Icon frá samtökum bandarískra tískuhönnuða. Parker, sem hefur vakið mikla athygli fyrir klæðaburð sinn, m.a. í þáttunum Sex and the City, var hæstánægð með útnefninguna. "Tíska er minn helsti galli. Hún er veikleiki minn. Stundum sérðu eitthvað sem þig langar í og þú getur ekki keypt það, en ekki í mínu tilfelli."

Cindi Levie, ritstjóri tímaritsins Glamour, hrósaði Parker mjög fyrir klæðaburð sinn í gegnum tíðina. "Sarah Jessica Parker hefur sýnt að hátíska, sem hafði verið úr takti við raunveruleikann í nokkurn tíma, er nú í mun betri tengslum við það sem fólk klæðist í dag."

Rapparinn og tískumógúllinn P Diddy var verðlaunaður fyrir að hanna flottustu karlmannsfötin. Með merki sínu, Sean John, skaut hann meðal annars þeim virtu Ralph Lauren og Michael Kors ref fyrir rass. "Ég er mjög ánægður," sagði Diddy. "Ég er að upplifa bandaríska drauminn."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×