Viðskipti innlent

Financial Times fjallar um kaup KB

Dagblaðið Financial Times fjallar í dag um kaup KB banka á danska bankanum FIH í gær. Í grein blaðsins segir að kaupin hafi komið á óvart í Skandinavíu og að búist hafi verið við að sænskur banki, til að mynda Nordea eða SEB, myndi kaupa FIH. Hermt er að enginn hafi heyrt talað um KB í þessu samhengi fyrr en í gær, þegar gengið var frá kaupunum. Haft er eftir Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni KB, að bankinn hyggi á frekari fjárfestingar á Norðurlöndum og þurfi að stækka í Danmörku, Noregi og á Íslandi. Financial Times segir raddir uppi sem efist um að KB geti fjármagnað kaupin en Sigurður vísar því á bug. Engra efasemda gætti hér á landi og hækkaði gengi bréfa í bankanum um 12,5% við fréttina. Það hafðí þau áhrif að úrvalsvísitalan hækkaði um 3,6 stig og hefur aldrei verið hærri.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×