Lífið

Besti veggurinn í íbúðinni

Hreiðar Ingi Þorsteinsson tónskáld er með mörg ólík járn í eldinum þessa dagana, bæði er hann tónlistarstjóri fyrir íslenska hljóðsetningu á Disney-mynd og svo er hann að semja sálumessu.

En hvaðan skyldi hann fá innblástur?

„Ég fæ innblástur með því að horfa á myndir og rifja upp góðar minningar. Uppáhaldsstaðurinn minn í íbúðinni er myndaveggurinn í svefnherberginu mínu en hann er það fyrsta sem ég sé þegar ég vakna á morgnana. Á veggnum er allt æviskeiðið mitt, byrjar á bekkjarmyndum úr barnaskóla og fetar svo áfram þangað sem ég er í dag. Þarna eru myndir af Andrési Önd en hann er sérstakt uppþáhald hjá mér, mynd af hundrað manna kór sem flutti verk eftir mig í Grafarvogskirkju og myndir sem krakkarnir í Verslunarskólakórnum gáfu mér af öllum krökkunum sem hafa verið í kórnum hjá mér frá upphafi.

Þarna er einnig viðurkenningarskjal sem þau afhentu mér einu sinni og mér þykir mjög vænt um. Svo er auðvitað gullplatan sem ég fékk í fyrra fyrir að semja lög á jólaplötuna Ljósin heima og mynd af Páli Óskari og Móniku þegar við vorum að byrja að vinna saman.

Svo er þarna englamynd sem amma gaf mér og mynd af ömmu við hliðina, hálfgerð brúðarmynd af mér og Margréti Eir og ótal margar fleiri. Hver mynd kallar fram minningar og ef eitthvað gefur lífinu gildi þá er það að eiga svona góðar minningar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×