Tíska og hönnun

Gallabuxur ómissandi árið um kring

Eitt af því sem óhætt er að segja að sé ómissandi hverri manneskju er að minnsta kosti eitt par af gallabuxur. Þetta á ekki bara við um sumarið heldur allt árið um kring, alltaf.

Það er ótrúlegt úrval til af gallabuxum um þessar mundir, nær allar verslanir bjóða upp á gallabuxur, klassískar, snjáðar, svartar, ljósar, dökkar og hvítar.

Gallabuxur ganga líka við allt. Þær eru alltaf gjaldgengar sem hversdagsfatnaður og sífellt eykst notkun þeirra við betri tækifæri.

Levi Strauss fyrirtækið, sem er aldargamalt, er með Levi’s gallabuxunar á sínum snærum. Það er sennilega stærst og þekktast á gallabuxnamarkaðnum en Lee og Wrangler eiga sér jafnlanga sögu og buxurnar þeirra eru ekki síður vinsælar í dag. Fyrirtækin hófu framleiðslu á vinnufatnaði sem síðan hefur þróast út í að aðaláherslan er á þessa ómissandi flík, gallabuxurnar.

Diesel-buxur hafa verið þær vinsælustu undanfarin ár en sífellt bætist í flóruna, Miss Sixty, Gas, Blend, Fornarina og fljótlega verða Seven-gallabuxurnar einnig á boðstólum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×