Tíska og hönnun

Nýtt gel frá Lancóme

Body Sculptesse er silkikennt gel frá Lancóme sem þéttir og mýkir húðina. Gelið er borið á og því gefnar tvær mínútur og húðin verður þá strax þéttari og ferskari. Eftir þrjár klukkustundir verður húðin stinn og eftir fjórar vikur verða línurnar fallegri og grennri.

Gelið styrkir húðina og mótar líkamann eins og um stuðningssokkabuxur sé að ræða. Í gelinu er soja og silíkón afleiða sem styrkja kollagenþræðina. Þannig aukast teygjanleiki og þéttleiki sem skilar sér í minna ummáli. Eftir fjórar vikur verður líkaminn ekki aðeins stinnari og grennri heldur verður appelsínuhúðin mun minna áberandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×