Menning

Mest seldi bíllinn í Evrópu

Renault Megané II var kynntur fyrir aðeins um tuttugu mánuðum og þegar hafa milljónir eintaka selst. Megané hefur nú náð þeirri stöðu að vera mest seldi bíllinn í Evrópu. Evrópskum kaupendum hefur greinilega líkað nýstárleg og rennileg hönnun bílsins og var Megané II valinn bíll ársins árið 2003. B&L er umboðsaðili Renault á Íslandi og hefur salan á bílunum farið vel af stað það sem af er árinu. Renault atvinnubílar eru einnig mjög vinsælir og sendibíllinn Kangoo hefur viðhaldið ríflega fimmtíu prósenta markaðshlutdeild.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×