Menning

Prins prufukeyrir BMW

Hákon Haraldsson Noregsprins og konungsarfi, hefur mjög mikinn áhuga á sportbílum. Hann komst í heimsfréttirnar fyrir að giftast Mette-Marit, fráskilinni einstæðri móður, en nú á dögunum fékk hann að prufukeyra einn öflugasta sportbíl heims. Hákon prufukeyrði BMW Z8 og fékk hann það tækifæri er hann var í skoðunarferð um nýja prófunarbraut BMW-bílaframleiðandans í Ismaning í Þýskalandi en Hákon hafði verið í opinberri heimsókn í landinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×