Menning

Tryllitækið

Tryllitæki vikunnar er að þessu sinni glæsileg Subaru Impreza og eigandi hennar er Valdimar Sveinsson. Bíllinn er 2000 árgerð en Valdimar festi kaup á gripnum árið 2002. Valdimar og fyrri eigandi eru búnir að gera margt fyrir hann. Til dæmis er búið að sérsmíða stuðara og húdd úr plasti, setja spoilerkitt allan hringinn og bæta við stillanlegri fjöðrun. Síðan eru sætin leðurklædd og búið að koma sjónvarpi og playstation-tölvu fyrir í bílnum. Einnig er hljómflutningstæki upp á 800.000 krónur sem prýðir bílinn. Vélin er tveggja lítra og með fullt af hestöflum en Valdimar er búinn að stækka túrbínuna og setja inn nýja tölvu. Búið er að setja nýjan og sterkari gírkassa í bílinn, sem er hljóðeinangraður algjörlega frá A til Ö. Fleiri glæsilegir aukahlutir prýða einnig þennan glæsilega bíl. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×