Tíska og hönnun

MAC-snyrtivörur

Nýja sumarlínan frá MAC-snyrtivörunum er fersk, litrík og nýstárleg eins og venjan er með vörurnar frá MAC.

Línan, sem er væntanleg í næstu viku, er þrískipt; Gilt fyrir húðina, Tantress fyrir andlit og augu og Lusterglass fyrir varirnar.

Gullin húð er eftirsóknarverð yfir sumarmánuðina og þessi gyllta og glansandi lína uppfyllir óskir þeirra sem vilja frísklegt útlit án mikilla sólbaða.

Gilt-línan er bæði ætluð konum og körlum og kemur í mismunandi litatónum.

Augnskuggarnir, gljáinn og glossin eru fáanleg í mörgum fallegum litum sem fara vel við glæsilega gyllta húðina.

Það er líka margt annað í boði hjá MAC því þetta er mjög fjölbreytt snyrtivörufyrirtæki og býður upp á ólíkar línur fyrir ólík tækifæri.

Allt er fáanlegt hjá MAC; dagfarðinn fyrir fóstruna, fína púðrið fyrir brúðina og glamúrinn fyrir næturdrottninguna.

www.maccosmetics.com






Fleiri fréttir

Sjá meira


×