Tíska og hönnun

Ný gervibrúnkulína

Nú er komin á markaðinn ný lína gervibrúnkuvara í N°7 snyrtivörunum frá snyrtivöruframleiðandanum Boots. Þessar gervibrúnkuvörur eru unnar úr einstöku efni sem bindast við húð og tolla því betur á andliti og líkama. Vörurnar eru allar ofnæmisprófaðar. Línan inniheldur:

Spreybrúsa sem úðast í 360 gráður og því er auðvelt að spreyja á þá staði líkamans sem erfitt er að ná til, eins og til dæmis bakið.

Létta froðu sem er auðvelt að vinna með og gefur góða áferð á líkama og andlit.

Húðmjólk sem er brún á litinn og sýnir því á hvaða fleti er búið að bera á. Mjólkin er því mjög góð fyrir óvana.

Andlitsgel sem gefur fallega áferð á andlit.

Glitrandi krem sem viðheldur brúnum húðlit eftir sólböð eða gervibrúnku. Kremið er með smá lit í og nærir og bætir húðina.

Brúnkuperlur sem gefa útlit eins og eftir sólbað og fellur mjög vel að öllum húðlitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×