Menning

Brúðargjöf Danaprins

Friðrik krónprins Dana fékk forláta Mitsubishi Lancer Evolution 8 í brúðargjöf. Bíllinn er mikið tækniundur og næstum því kappakstursbíll. Lancer Evolution 8 er einmitt áttunda kynslóð Evolution bílanna frá Mitsubishi en bíllinn er náskyldur rallíbílum framleiðandans og líklega má segja að Evolutioninn líkist meira rallíbílnum en nokkurn tíma venjulegum Lancer. Bíll krónprinsins er ekki gulur, eins og bíllinn á myndinni, heldur valdi hann svartan bíl og að sjálfsögðu er leðuráklæði á sætunum. Evolution 8 er sagður óhemjukraftmikill og skemmtilegur bíll og ekki er að spyrja að hraðanum sem hann kemst í. Hann mun einnig vera auðveldur og skemmtilegur í akstri og jafnvel henta til daglegra nota.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×