Menning

Subaru dagur

Ingvar Helgason býður Subaru-eigendum í ferðalag í dag. Ferðin hefst klukkan 9.30 með léttum morgunverði í húsakynnum Ingvars Helgasonar að Sævarhöfða 2. Klukkan 10 er lagt af stað og ekið austur að Nesjavöllum þar sem stoppað verður í stutta stund. Þaðan verður ekið í kringum Þingvallavatn og síðan um Kjósarskarð. Ferðinni lýkur í Hvammsvík. Þar verður slegið upp grillveislu í boði fyrirtækisins. Einnig verður boðið upp á golf, veiði, hesta fyrir börnin og leiki ásamt fleiru. Í Hvammsvík geta ferðalangar reynsluekið nýjum og glæsilegum Subaru-bílum og fulltrúi Subaru-verksmiðjanna verður á staðnum. Dagskrá lýkur um klukkan 16. Skráning fer fram á vef Ingvars Helgasonar, ih.is.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×