Menning

Undraklútar

Það verður enginn samur eftir að hafa prófað að þrífa bílinn sinn með Armor All blautþurrkunum. Þær eru yfirnáttúrulega góðar á mælaborð, áklæði og allt harðplast í bílnum og má henda í ruslið eftir notkun. 25 klútar fást í lokuðum plastdunkum á öllum sölustöðum Essó og kosta 965 krónur. Gamlar druslur verða eins og nýjar með lítilli fyrirhöfn og svo má geyma klútana í bílnum þar til næsta þrifnaðar er þörf. Miklu auðveldara en að vera með tuskur og hreinsivökva um allan bíl. Armor All þurrkur eru framleiddar af Clorox, einum stærsta þvottaefnisframleiðanda heims, og eru til í þremur gerðum, ein til að þrífa mælaborð og áklæði, önnur til að þrífa gler og þriðja til að setja gljáa. Gljáaklútarnir eru algjör snilld og þrífa líka vel!





Fleiri fréttir

Sjá meira


×