Tíska og hönnun

Skartgripir með litaskjá

Medallion I og II eru sniðugar nýjungar frá frændum okkar í Finnlandi. Í dag skarta farsímar í síauknum mæli aukabúgreinum eins og hjóðupptöku, ljósmyndun og vídeóupptökum svo eitthvað sé nefnt. Í ljósi þessa hafa farsímasmiðirnir hjá Nokia sennilega talið vera ákveðin skort á "birtingarformum" þessara aukabúgreina og hannað Medallion skartið.

Eins og myndin sýnir eru þarna á ferðinni frekar nettir stálskartgripir með innbyggðum litaskjá. Fyrir utan að vera úr, þá skartar hluturinn þeim myndum sem eigandinn vill deila með umheiminum í hvert skipti, jafnvel margar í röð. Hægt er að hlaða inn myndum í gegnum innrauða tengingu og bera svo gripinn um hálsinn eða á hefðbundnari stöðum eins og á úlnlið.

Hálsmenin frá Nokia eru væntanleg í verslun Hátækni og munu kosta í kringum 20.000 krónur.

Þyngd 36 g.

Ummál 47x 32 x 14.8 mm

Skjár: 96x96 punkta, 4096 litaskjár, 16.7 x 16.7 mm

Ein snerting afhjúpar úrverk

Innrauð tenging fyrir hleðslu mynda

Minni: 2MB SRAM, 1 MB flash minni rúmar 8 myndir

80 mAh endurhlaðanleg litium-ion rafhlaða

Stjórntæki til að fletta og eyða myndum

Leðurólar fyrir háls eða úlnlið fylgja







Fleiri fréttir

Sjá meira


×