Menning

Ný Mazda, Verisa, var kynnt í Tóký

Ný Mazda, Verisa, var kynnt í Tókýó á mánudaginn. Mazda Motor Corporation, sem er fimmti stærsti bílaframleiðandinn í Japan, hefur þróað þennan nýja bíl á afar stuttum tíma. Margir telja að Verisa svipi nokkuð í útliti til gamla góða Austin Mini.Heitið Verisa er samsett úr latneska orðinu veritas, sem merkir sannleikur, og enska orðinu satisfaction eða fullnægja. Markhópurinn fyrir nýja bílinn er stór en fyrst og fremst verður markaðssetningunni beint að pörum á fertugsaldri með áhuga og smekk fyrir hönnun og gæðum.Grunnútgáfa bílsins er með 1,5 lítra bensínmótor en hann verður einnig fáanlegur með aukarafmótor sem knýr afturhjólin og gerir bílinn þar með fjórhjóladrifinn. Önnur nýjung er innbyggð tónlist, 100 lög sem valin eru af ritstjórum leiðandi tísku- og lífsstílstímarita í Japan. Enginn þarf þó að óttast að fá ekki að velja tónlist við aksturinn sjálfur því lögin eru vistuð á hörðum diski sem rúmar alls 3.000 lög.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×