Sport

Valskonur að stinga af á toppnum

Valsstúlkur hafa náð sjö stiga forystu á ÍBV og fimm stiga forskoti á toppi Landsbankadeildar kvenna eftir 3–1 sigur á ÍBV í bráðskemmtilegum leik á Hlíðarenda í gær. ÍBV byrjaði mjög vel og réð algjörlega ferðinni og fékk fjögur dauðafæri áður en Nína Ósk kom Val yfir algjörlega gegn gangi leiksins. Eyjastúlkur héldu síðan tökum á leiknum í fyrri hálfleik, sköpuðu fleiri færi en Guðbjörg Gunnarsdóttir varði allt sem á markið kom en hún átti mjög góðan leik. Það var síðan allt annað Valslið sem mætti til leiks í síðari hálfleik. Þær skoruðu tvö lagleg mörk á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks. Eftir það missti ÍBV trúna á leiknum sem þær fengu ekki aftur fyrr en Margrét Lára skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu. Eftir mark Margrétar pressuðu þær nokkuð stíft en þó án þess að skapa mikla hættu upp við mark Vals. Guðbjörg Gunnarsdóttir var eins og áður segir mjög góð í markinu. Katrín Jónsdóttir lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði Vals og stóð sig afar vel og ljóst að koma hennar er hvalreki fyrir Valsliðið. Eins og svo oft áður bar lítið á Nínu Ósk en hún kann svo sannarlega að vera á réttum stað á réttum tíma. ÍBV hefði getað komið sér í góða stöðu hefðu þær nýtt færin sín í byrjun og má segja að þær hafi verið sjálfum sér verstar í þessum leik. Valur-ÍBV 3-1 (1-0) 1–0 Nína Ósk Kristinsdóttir 16. 2–0 Nína Ósk Kristinsdóttir 48. 3–0 Kristín Ýr Bjarnadóttir 54. 3–1 Margrét Lára Viðarsdóttir 76. Best á vellinum Guðbjörg Gunnarsdóttir Val Tölfræðin Skot (á mark)  13–21 (6–12) Horn 5–4 Aukaspyrnur fengnar 9–13 Rangstöður 2–2 Mjög góðar Guðbjörg Gunnarsdóttir Val Katrín Jónsdóttir Val Ásta Árnadóttir Val Michelle Barr ÍBV Góðar Nína Ósk Kristinsdóttir Val Dóra María Lárusdóttir Val Málfríður Erna Sigurðardóttir Val Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV Íris Sæmundsdóttir ÍBV Bryndís Jóhannesdóttir ÍBV Karen Burke ÍBV



Fleiri fréttir

Sjá meira


×