Sport

Þrír leikir hjá konunum

Þrír leikir fara fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Valsstúlkur, sem eru í efsta sæti deildarinnar eftir sjö umferðir með 21 stig og fimm stiga forskot á næsta lið, taka á móti FH sem er í næst neðsta sæti með 4 stig.Þór/KA/KS mætir Stjörnunni á Akureyri. Aðeins einu stigi munar á liðunum en Stjarnan er ofar í töflunni með 6 stig. KR, sem er í öðru sæti deildarinnar með 16 stig, fær Fjölni í heimssókn en Fjölnir vermir neðsta sætið með aðeins 1 stig. Allir leikirnir hefjast kl 20.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×