Sport

Verðlaunafé jafnað

KSÍ hefur fyrir tilstuðlan Landsbanka Íslands ákveðið að jafna verðlaunafé í Landsbankadeildum karla og kvenna en KSÍ hefur legið undir ámæli vegna þessa. Íslandsmeistarar í Landsbankadeild karla fengu eina milljón króna en Íslandsmeistari í Landsbankadeild kvenna 300.000 kr. Nú hefur þetta verið jafnað og fá Íslandsmeistarar kvenna einnig eina milljón króna í verðlaunafé. Fyrir annað sætið í Landsbankadeildum karla og kvenna fá liðin 700.000 kr. Fyrir 3. sætið 500.000, fyrir næstu sætu þar fyrir neðan 300.000 kr. og fyrir neðsta sætið 200.000 kr. Í fréttatilkynningu frá KSÍ segir að með ákvörðun sinni sé KSÍ komið í forystu knattspyrnusambanda í heiminum og ákvörðunin viðurkenning til íslenkra knattspyrnukvenna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×