Tíska og hönnun

Birkenstock ekki lummó

Birkenstock sandalar eru sko aldeilis ekkert eins lummó og þeir voru hér áður fyrr. Þeir voru tákn fólksins sem var ekki í tísku en jafnframt þeirra sem voru umhverfisvænir og var annt um heilsuna.

Nú virðist sem Birkenstock sandalar séu að slá í gegn og finnst varla ung og flott fyrirsæta sem klæðist þeim ekki. Þessir þægilegu sandalar eru tískan í sumar fyrir alla aldurshópa. Birkenstock sandalar eru eins mismunandi og þeir eru margir og er hægt að fá þá í öllum regnbogans litum.

Birkenstock hefur fengið fyrirsætur á sitt band og hannaði Heidi Klum heila sandalalínu á dögunum. Sandalarnir hennar Heidi rjúka út eins og heitar lummur og spennandi að sjá hvaða fyrirsæta fetar í hennar fótspor.

Hægt er að fá Birkenstock sandala hjá versluninni Misty, Laugavegi 178 og Stoðtækni Gísla Ferdinandssyni ehf., Kringlunni 8-12 í Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×