Sport

Olga skoraði fjögur gegn KR

Olga Færseth fór á kostum gegn sínum fyrrum félögum í KR í kvöld er þær heimsóttu hana til Eyja. Hún skoraði fjögur mörk og lagði grunninn að 6-2 sigri Eyjastúlkna. Hin mörk Eyjastúlkna skoruðu Margrét Lára Viðarsdóttir og Mhairi Gilmour. Ratka Zivkovic og Edda Garðarsdóttir skoruðu mörk KR. Mark Eddu var einstaklega glæsilegt. Beint úr aukaspyrnu af 40 metra færi. Eyjastúlkur eiga því enn möguleika á titlinum en KR hefur væntanlega lokið keppni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×