Sport

Ólympíuleikarnir í Aþenu hafnir

Setningarathöfn Ólympíuleikanna hófst fyrir tæpri klukkustund. Einn af hápunktum athafnarinnar er flutningur Bjarkar Guðmundsdóttur á laginu Oceania sem var samið í tilefni leikanna. Setningarathöfn Ólympíuleikanna hófst nú rétt fyrir fréttir og eins og við var að búast er mikið um dýrðir. Ólympíuleikvangurinn í Aþenu er sneisafullur af fólki hvaðanæva úr heiminum, jafnt hefðarmönnum sem almenningi. Alls ganga 10.500 íþróttamenn frá tvö hundruð og tveimur þjóðum um Ólympíuleikvanginn í kvöld undir tónlist og lófataki 72 þúsund áhorfenda. Athöfnin er einn stærsti viðburður sinnar tegundur frá upphafi, enda taka tæplega 9000 skemmtikraftar þátt í stanslausri sýningu þar sem Grikkland til forna og nútíminn mætast í mikilli sjónrænni veislu. Eitt af aðalatriðum kvöldsins er í höndum Bjarkar Guðmundsdóttur. Hún mun syngja lagið Oceania af væntanlegri plötu sinni, Medúlla. Lagið verður flutt í lítið eitt breyttri útgáfu í kvöld sem, að sögn Bjarkar, mun eiga við andrúmsloft kvöldsins. Texta lagsins samdi skáldið Sigurjón Birgir Sigurðsson, betur þekktur sem Sjón, og lagði hann mikið á sig við undirbúning lagsins og tók meðal annars námskeið í grískri goðafræði til að undirbúa sig sem best. Á leikunum sem standa í sextán daga verður keppt í 28 íþróttagreinum á 38 mismunandi stöðum í höfuðborg Ólympíuleikanna, Aþenu. Öryggisgæsla vegna leikanna er gríðarlega mikil og til marks um það verða 70 þúsund öryggisverðir til taks meðan á leikunum stendur. Þyrlur og loftför munu sveima yfir Aþenu, auk þess sem götum og höfnum verður gætt af ítrustu varkárni. Allt þetta á að gera það að verkum að stærsta íþróttahátíð heims fari fram án óhappa og þar með sjá til þess að ekkert skyggi á Ólympíuandann sem nú svífur yfir Aþenu eins og fyrir 108 árum á fyrstu nútímaólympíuleikunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×