Sport

Þrenna Olgu í 7-0 sigri ÍBV

ÍBV vann sjötta heimaleik sinn í röð í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í gær. Að þessu sinni unnu þær lið Þór/KA/KS 7-0 en ÍBV-liðið hefur skorað 7,7 mörk að meðaltali í leik á Hásteinsvellinum í sumar, minnst 6 mörk og mest 11 mörk. Olga Færseth skoraði þrennu í leiknum og hefur skorað í öllum 15 leikjum sínum á Hásteinsvellinum. ÍBV-Þór/KA/KS 7-0 1–0 Elín Anna Steinarsdóttir 21. 2–0 Olga Færseth 26. 3–0 Margrét Lára Viðarsdóttir 37. 4–0 Elena Einisdóttir 53. 5–0 Samantha Britton 56. 6–0 Olga Færseth 59. 7–0 Olga Færseth 63. Best á vellinum Olga Færseth ÍBV Tölfræðin Skot (á mark)  27–4 (18–2) Horn 8–1 Aukaspyrnur fengnar 5–6 Rangstöður 5–0 Mjög góðar Olga Færseth ÍBV Góðar Íris Sæmundsdóttir ÍBV Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV Elín Anna Steinarsdóttir ÍBV Samantha Britton ÍBV Rachel Kruze ÍBV Leikir ÍBV á Hásteinsvelli í sumar: 18. maí.Landsbankadeild ÍBV-Breiðablik  8-1   24. maí. Landsbankadeild ÍBV-FH  8-0   14. jún.Landsbankadeild ÍBV-Stjarnan  11-0   29. jún. Landsbankadeild ÍBV-Fjölnir  6-0   09. júl. VISA-bikar ÍBV  Þróttur R.  8-0   6. ágú. Landsbankadeild ÍBV-KR  6-2   14. ágú. Landsbankadeild ÍBV-Þór/KA/KS  7-0   



Fleiri fréttir

Sjá meira


×