Tíska og hönnun

Fashion Rocks

Tónleikarnir Fashion Rocks munu marka upphafið að tískuvikunni í New York, sem hefst þann 8. september. Tónleikarnir verða sýndir í beinni á Fox-sjónvarpsstöðinni þann 26. ágúst. Meðal skemmtikrafta á tónleikunum verða Usher, Rod Stewart, Beyoncé, Black Eyed Peas, Alicia Keys og fleiri. Í kjölfarið verður gefið út fylgiblað sem skýrir hvernig tónlistin hefur haft áhrif á tískuna í gegnum árin. Þetta blað mun fylgja flestum stærstu tískutímaritum heims eins og Vogue og Vanity Fair. Enn fremur verður mánaðarlöng sýning í Frægðarhöll rokksins í Cleveland í tilefni af þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×