Sport

Valsstúlkur enduðu með sigri

Lokaumferðin í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu var leikin í gær. Nýkrýndir Íslandsmeistarar Vals lögðu ÍBV að velli í Eyjum 3-1. FH vann Fjölni 2-1, Stjarnan skellti Blikum 4-1 og KR bar sigurorð af Þór/KA/KS 3-1. Valur vann deildina með átta stigum, hlaut 40 stig, vann þrettán leiki og gerði eitt jafntefli, markatalan 56-7. ÍBV varð í öðru sæti með 32, KR í þriðja með 30, Breiðablik í fjórða sæti með 15 stig, Stjarnan í fimmta sæti með 14, FH í sjötta, einnig með 14 stig en lakari markamun, Þór KA/KS í sjöunda sæti og þarf að leika við ÍA um laust sæti í úrvalsdeild að ári, og að lokum Fjölnir í áttunda sæti með 5 stig og féll því í 1. deild.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×